Innlent

Foreldrar höfða mál gegn ríkinu vegna fæðingarorlofsgreiðslna

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sara Pálsdóttir lögmaður segir að um mismunun sé að ræða.
Sara Pálsdóttir lögmaður segir að um mismunun sé að ræða. Vísir/Anton
Foreldrar sem áttu börn fyrir 15. október síðastliðinn undirbúa nú hópmálsókn gegn íslenska ríkinu vegna reglna um fæðingarorlofsgreiðslur sem tóku gildi þann dag. Foreldrarnir segja að um sé að ræða mismunun og ætla að fara fram á að fá greitt úr sjóðnum líkt og aðrir foreldrar sem áttu börn eftir 15. október.

„Að mínu mati er verið að mismuna foreldrum. Þeir eru að fá greitt úr fæðingarorlofssjóði á sama tíma en eftir mismunandi reglum, þrátt fyrir að þeir hafi allir greitt ákveðna prósentu af launum sínum í tryggingasjóðinn sem fjármagnar fæðingarorlofssjóðinn,“ segir Sara Pálsdóttir héraðsdómslögmaður, en hún er ein þeirra sem átti barn fyrir 15. október.

Sjá einnig:Verðandi mæður fresta gangsetningu fyrir hærri greiðslur

Sara segir að til þess að af málsókninni verði þurfi að minnsta kosti fimmtíu foreldrar að taka þátt í henni. Hún birti færslu á foreldrahópum á Facebook þess efnis í gærkvöldi og segist hún strax hafa fengið mikil viðbrögð, enda séu foreldrar afar ósáttir. Aðspurð segist hún ætla að byggja málið á því að um brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar sé að ræða.  

„Mismununin sjálf er ekki endilega brot á jafnræðisreglu nema hún sé ómálefnaleg og ég ætla að freista þess að láta reyna á þetta fyrir dómstólum. Ráðherra hefur gefið tvenns konar rök fyrir því að gera þetta svona, segir að annars vegar séu ekki til fjármunir og að svona hafi þetta alltaf verið gert, sem ég tel mjög ómálefnaleg rök,“ útskýrir Sara, sem hvetur foreldra sem vilja taka þátt að hafa samband við sig í gegnum netfangið sara@lausnir.is.

Sjá einnig:Fegin því að ganga fram yfir

Foreldrar frestuðu gangsetningu

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 7. október síðastliðnum að hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi myndu hækka úr 370 þúsund krónum í 500 þúsund krónur, og tók hækkunin gildi 8 dögum síðar, eða hinn 15. október. Fæðingarstyrkur og lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækkuðu einnig. Foreldrar lýstu yfir miklum áhyggjum og dæmi voru um að mæður frestuðu gangsetningu og reyndu allt hvað þær gátu til þess að fresta fæðingu fram að umræddum degi.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði að svona hefði þetta alltaf verið þegar fæðingarorlof hafi verið hækkað, þrátt fyrir að hafa sjálf viljað ganga lengra og hafa upphæðina hærri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×