Foreldrar bregðast við tíðindum af broti gegn litlu stelpunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. maí 2013 11:50 Karlmaður er grunaður um að hafa brotið gegn tíu ára gamalli telpu. Mynd/ Getty.
Foreldrar barna í Vesturbæ ætla að óska eftir meiri sýnileika lögreglunnar þegar skóla lýkur. Þetta kemur fram í bréfi sem forystumenn foreldrafélaga skóla í Vesturbæ sendu foreldrum í morgun. „Hvatt er til aukinnar vitundar, fræðslu og þátttöku um hverfagæslu í Vesturbæ,“ segir í bréfinu. Tilefnið er fréttir af manni sem braut gegn ungri stúlku í Vesturbæ í fyrradag. Maðurinn var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í gær. Forystumenn foreldrafélaganna hvetja til þess að foreldrar ræði við börn sín um þessi mál. „Helst þarf að ræða málin á þann hátt að niðurstaðan verði ekki að börn vantreysti fullorðnum almennt. Vestubærinn er almennt talinn eitt öruggasta hverfi höfuðborgarsvæðisins. Hefur það m.a. komið fram á almennum upplýsingafundum lögreglu, í tölfræðigögnum o.s.frv. Hér iðar allt af lífi og mikil hreyfing er í kringum skólana, frístundaheimilin, KR, verslanirnar, sundlaugina, Háskólann, kirkjurnar, æfingasvæðin, róluvellina, á göngu- og hlaupastígum o.s.frv.," segir í bréfinu. Í bréfinu segir að foreldrar muni hjálpast að, ásamt skólunum og samfélaginu öllu, þéttum raðirnar, stöndum saman og verðum enn betur vakandi. „Horfum í kringum okkur og tökum eftir hvort ekki er allt með felldu. Skipulögð samvinna okkar - þ.e. viðbragð heildarinnar - virkar sterkast," segir í bréfinu. Í bréfinu segir líka að því miður sé ekki til handhægt og aðgengilegt upplýsingaefni fyrir foreldra um hvernig best sé að ræða við börn sín um mál sem þessi. Við hvetjum enn til þess að fagaðilar afli þessa efnis eða fái það útbúið.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira