Tónlist

Foreign land og Voice of a Woman

Stefán Árni Pálsson skrifar
Foreign land.
Foreign land. vísir
Út er kominn hljómplatan Voice of a Woman frá hljómsveitinni Foreign Land.

Á plötunni Voice of a Woman ríkir rödd konu sem tjáir gleði, reiði, ástir, sorgir og söknuð.

„Þetta er eitthvað sem við öll þurfum að eiga við. Við byrjuðum á að spila blús en tónlistarstíllinn þróaðist í nýja og óvænta átt. Það sem skiptir máli er að við höfum náð hljómi sem við erum sátt við að leyfa öðrum að heyra, vinna með og þróa til framtíðar,” segir Rakel María Axelsdóttir söngkona Foreign Land.

Foreign Land hefur komið víða fram síðastliðin 2 ár.

„Við njótum þess að koma fram og spila, tjá tilfinningar okkar og hreyfa við fóliki. Við erum í raun ólíkir tónlistarmenn en náum að sameina krafta okkar í Foreign Land,” segir Haraldur Gunnlaugsson gítarleikari hljómsveitarinnar.

Öll lögin á plötunni eru eftir meðlimi hljómsveitarinnar, þá Hauk Hafsteinsson og Harald Gunnlaugsson, en textar eru eftir Hauk og einnig þau Jane Appleton og “von Akros”

Hægt er að nálgast plötuna á geisladisk eða rafrænu niðurhali á slóðinni.

Foreign Land stefnir að því að leyfa sem flestum landsmönnum að njóta tónlist hljómsveitarinnar fram að jólum. Útgáfutónleikar verða á Café Rosenberg 25. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×