Viðskipti erlent

Ford byggir upp verksmiðju í Michigan

Benedikt Bóas skrifar
Donald Trump lofaði kjósendum að hann myndi setja háan toll á þá bílaframleiðendur sem flyttu framleiðslu sína frá Bandaríkjunum til Mexíkó.
Donald Trump lofaði kjósendum að hann myndi setja háan toll á þá bílaframleiðendur sem flyttu framleiðslu sína frá Bandaríkjunum til Mexíkó. vísir/afp
Bandaríski bílarisinn Ford tilkynnti í gær áætlanir sínar um að fjárfesta fyrir 700 milljónir dollara í Michigan-ríki. Á fjárfestingin að skapa um 700 störf í Flat Rock verksmiðjunni sem fær veglega andlitslyftingu. Bílarisinn ætlaði að reisa verksmiðju í Mexíkó fyrir 1,6 milljarða dollara þar sem átti að smíða nýja útgáfu af Ford Focus.

Mark Fields, forstjóri Ford, sagði á blaðamannafundi í gær að áætlanir Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, væru hvetjandi. „Við trúum að það sem er að gerast með skatta og fleira muni geta gert Bandaríkin samkeppnishæf,“ sagði forstjórinn meðal annars í ræðu sinni. Hann neitaði því að hafa gert einhvers konar samkomulag við Trump.

Fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum hafði Trump lýst yfir þeim ásetningi sínum að leggja háan toll á þá bílaframleiðendur sem flyttu bílaframleiðslu sína frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Eiga flestir starfsmenn að vinna við að setja saman nýjan rafmagnsbíl frá Ford sem og að smíða varahluti fyrir Mustang og Lincoln.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×