Tíska og hönnun

Forbes fjallar ítarlega um Galvan

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Sóla flýgur á milli heimsálfa í vinnunni en það hefur gengið vel hingað til.
Sóla flýgur á milli heimsálfa í vinnunni en það hefur gengið vel hingað til. mynd/aðsend
Í byrjun mánaðarins birtist grein á vefsíðu Forbes um breska merkið Galvan sem segir það vera á góðri leið með að verða eitt stærsta merkið í gala-fatnaði. Sóla Káradóttir er listrænn stjórnandi merkisins en það var stofnað fyrir aðeins einu og hálfu ári og hefur vaxið á miklum hraða síðan þá.

Í dag eru aðeins fjórir starfsmenn en Sóla segir að fyrirtækið þurfi bráðum að stækka við sig. Stjörnur á borð við Siennu Miller, Jennifer Lawrence, Elizabeth Olsen og Rihönnu hafa klæðst kjólum frá Galvan.

„Ég flýg mikið á milli London og Los Angeles vegna vinnunnar. Úti í LA er ég aðallega að vinna að „celebrity dressing“ en skrifstofan okkar er í London. Við erum hver á sínum staðnum og erum mikið að vinna í gegnum Skype. Það hefur gengið mjög vel hingað til og það sem við græðum mest á því eru sambönd um allan heim sem við getum nýtt okkur,“ segir Sóla.





Jennifer Lawrence klæddist þessum fallega kjól í eftirpartíi eftir Met Gala.Getty
Í grein Forbes segir að Galvan fylli upp í ákveðið gat í markaðnum þar sem konur geta keypt sér mínímalíska kjóla sem eru í góðum gæðum og eru ekki á sama verðbili og öll lúxusmerkin þar sem kjólarnir eru yfirleitt of mikið skreyttir og kosta annan handlegginn. 

„Okkur hefur gengið vel að koma þessu inn í búðir og margir segja að þetta sé akkúrat það sem þeir hafa verið að leita að.“ Þær ætla að halda lengur áfram að einblína á þá stefnu sem þær hafa markað sér en eru opnar fyrir að bæta við vörulínum í framtíðinni þegar merkið er búið að skjóta almennilegum rótum á tískumarkaðnum. 

Þessa dagana er Sóla stödd á Íslandi en fer fljótt út aftur þar sem tískumánuðurinn nálgast óðfluga en þá verður keyrsla allan september. 

„Við höfum aðallega verið að koma þessu sjálfar inn í búðir og ekki verið með mikið af sýningum. Við erum kannski fáar í fyrirtækinu en við erum mjög „hands on“. Ásamt því að tískuvikurnar eru að byrja þá erum við líka komnar langt á leið með sumarlínuna fyrir næsta ár og erum byrjaðar að vinna í haustlínunni fyrir 2016.“





Sienna Miller Leikkonan hefur klæðst tveimur flíkum frá Galvan.
Margar stórar stjörnur hafa klæðst Galvan en Rihanna sem er ein frægasta söngkonan um þessar myndir fór sjálf í Opening Ceremony-verslun og keypti þar tvo kjóla. 

„Hún klæddist öðrum kjólnum í afmælinu sínu og svo hinum í fyrirpartíi fyrir Grammy-verðlaunin. Það gerði mikið fyrir vörumerkið okkar enda skiptir máli að fá góða ímynd. Sienna Miller hefur líka klæðst tveimur flíkum frá okkur og hún hefur áhuga á að fá okkur til þess að hanna fyrir sig.“

Breska Vogue fjallaði einnig um Galvan á dögunum hér. 


Tengdar fréttir

Fyrsta fatalína vekur heimsathygli

Sólveig Káradóttir er gift inn í frægustu tónlistarfjölskyldu í heimi og reynir nú fyrir sér á nýjum sviðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×