Lífið

Fór úr lið og setti myndband á Twitter

Leikkonan Olivia Munn varð fyrir því óhappi á sunnudag að fara úr axlarlið í íbúð sinni. Hún tók því þó vel og setti myndband af herlegheitunum á Twitter-síðu sína.

Olivia var að leika sér í rólu sem hún er með heima hjá sér þegar rólan slitnaði með þeim afleiðingum að Olivia féll kylliflöt á gólfið og fór úr axlarlið.

Lognið á undan storminum.
“Ég var að fara mjög hátt þegar rólan slitnaði. Slæmu fréttirnar – ég fór úr axlarlið. Góðu fréttirnar – ég hló og náði því á myndband,” skrifaði Olivia við myndbandið. Tekur sig greinilega ekki of alvarlega þessi hæfileikaríka leikkona.

Með góðan húmor.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×