Bíó og sjónvarp

Fór langt frá sér til að tengjast karakternum

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, leikkona og laganemi, hefur vakið athygli fyrir aðalhlutverkið í þáttaröðinni Fangar.
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, leikkona og laganemi, hefur vakið athygli fyrir aðalhlutverkið í þáttaröðinni Fangar. Vísir/Vilhelm
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir fer með hlutverk Lindu í þáttaröðinni Fangar. Þorbjörg hefur vakið athygli fyrir kvikmyndaleik síðustu misserin en hún fór einnig með hlutverk Heru í Málmhaus. Um tvö mjög ólík, en samt að einhverju leyti lík, hlutverk er að ræða.

„Þetta eru bæði hlutverk sem fylgjast með ungri konu á mjög sérstökum stað í lífi sínu,“ segir Þorbjörg þegar hún ber hlutverk Lindu í Föngum saman við Heru í Málmhaus.

„Linda er búin að vera í ákveðnu ástandi með sjálfa sig í langan tíma og það er komið að vissum þolmörkum, sama mætti segja um Heru í Málmhaus. Þær eru báðar að takast á við og berjast gegn hlutum sem þær ráða ekki alveg við. Hvað varðar persónuleikann eru þetta aftur á móti mjög ólíkir karakterar, eiginlega svart og hvítt.

Allir hafa mismunandi hliðar og ganga í gegnum mismunandi tímabil í lífinu. Og það fer algjörlega eftir því hvenær maður kynnist fólki hvaða hliðar á því maður fær að sjá. Linda er engin undantekning. Þegar við kynnumst Lindu í Föngum er hún föst í aðstæðum sem kalla ekki alltaf fram hennar bestu hliðar.“

Þorbjörg í hlutverkum sínum í Föngum og Málmhaus.
Hvert og eitt hlutverk krefst mismunandi undirbúnings að sögn Þorbjargar. 

„Yfirleitt þegar ég er að leika þá reyni ég að finna mér einhvern grunn, eitthvað tvennt eða þrennt sem karakterinn byggir á. Öll vinna sem kemur eftir það gengur út frá grunnpunktunum. Það tekur mislangan tíma að finna grunntenginguna við karakter, með Lindu tók það alveg einhvern tíma því hún er mjög ólík mér og ég þurfti að fara ansi langt frá sjálfri mér til að finna hana. Það er margt í hennar lífi sem er mér framandi ég þurfti að kynna mér hlutina vel og setja mig inn í þá,“ segir Þorbjörg og bætir við að hún sé virkilega þakklát Ragnari Bragasyni, leikstjóra þáttanna, fyrir það hversu góðan tíma hann gaf henni til að kynnast karakternum.

Þess má geta að þættirnir fjalla um tímabil í lífi Lindu og sýna hvernig líf hennar hrynur þegar hún er færð í kvennafangelsi í Kópavogi eftir að hafa ráðist á föður sinn, þjóðþekktan mann úr viðskiptalífinu, og veitt honum lífshættulega áverka. Í fangelsinu kynnist Linda konum sem hafa farið út af sporinu í lífinu. 

„Þetta eru ekki endilega spennuþættir, þetta eru meiri dramaþættir. Við fáum að fylgjast með fjölskyldu Lindu takast á við aðstæður,“ útskýrir Þorbjörg.

Skrítið að leika Lindu og fara svo heim í hversdagslíf

Þegar tökur fóru fram síðastliðið sumar var Þorbjörg nýlega komin í fæðingarorlof en hún eignaðist barn í febrúar 2015. 

„Ég var nýbúin að eignast barn og það að vera í þessum karakter allan daginn og fara svo heim og sinna barninu mínu var auðvitað frekar skrítið. Það er mjög langt skref þarna á milli,“ segir Þorbjörg sem hefur verið í lögfræðinámi við Háskóla Íslands samhliða leikarastarfinu og stefnir á að klára námið í sumar. 

„Ég sé fram á að geta klárað í sumar svo ég ætla að taka þessa önn í að fá BA-gráðuna mína. En ég mun að sjálfsögðu skoða allt ef ég fæ tækifæri til að takast á við spennandi hlutverk. Ég get alveg hugsað mér að leika meira og vinna við kvikmyndagerð, hvort sem það er fyrir framan eða aftan myndavélina. Mér finnst þetta bara virkilega skemmtilegt form,“ segir Þorbjörg að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×