Menning

Fór að skoða tengsl feðra við börnin sín

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Þessir feðgar virðast í góðu sambandi. Valur Freyr sem faðir og sonur hans Grettir í hlutverki sonar.
"Þessir feðgar virðast í góðu sambandi. Valur Freyr sem faðir og sonur hans Grettir í hlutverki sonar. Mynd/Ilmur
Valur Freyr Einarsson sló í gegn í sýningunni Tengdó, Grímusýningu ársins 2012. Nú teflir hann fram nýju verki, Dagbók jazzsöngvarans, sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld á vegum CommonNonsense.

„Þetta eru eiginlega systkinasýningar, Tengdó og þessi, því vinnsluaðferðin er svipuð. Ég tók viðtöl og vann út frá þeim,“ byrjar Valur Freyr lýsingu sína á nýja verkinu.

Hann kveðst hafa byrjað fyrir tveimur árum á að taka viðtal við mann sem var langt genginn með krabbamein.

„Ég var ekki viss hvort hann mundi lifa sumarið af og dreif mig í að spjalla við hann. Svo er hann enn sprækur tveimur árum seinna, Guði sé lof.

Hann trúði mér fyrir alls konar hlutum, fór í smá uppgjör við fortíðina, meðal annars samskipti sín við föður sinn og árin í djassinum. Það varð upphafið að þessu ferli hjá mér. Ég fór að skoða tengsl feðra við börnin sín eða tengslaleysi og hvernig það lekur ómeðvitað milli kynslóða. Það er undirliggjandi þema í þessu verki.“

Valur Freyr segir þennan umrædda mann hafa komið á rennsli um daginn og kannast við ýmislegt í sögunni. „Hann var þakklátur og fannst gott að þetta efni væri dregið fram í dagsljósið. Eitthvað sem hann hefur setið með í fanginu í mörg ár.“

Auk Vals Freys leikur 12 ára sonur hans, Grettir Valsson, í Dagbók jazzsöngvarans, auk hinnar þekktu Kristbjargar Kjeld. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson, um leikmynd og búninga sér Ilmur Stefánsdóttir og tónlist og hljóðmynd er Davíðs Þórs Jónssonar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×