Tónlist

Foo Fighters og The Prodigy koma fram á Secret Solstice

Stefán Árni Pálsson skrifar
Búast má við mörg þúsund manns á hátíðinni 15. -18. júní næsta sumar.
Búast má við mörg þúsund manns á hátíðinni 15. -18. júní næsta sumar. vísir/getty
Stærsta tónlistarhátíð landsins Secret Solstice hefur farið ört stækkandi síðan hún var gangsett árið 2014.

Skipuleggjendur hátíðarinnar tilkynna í dag fyrstu tónlistaratriðin sem koma fram í Laugardalnum 15.-18. júní næstkomandi.

Rokksveitin Foo Fighters er þar fremst á lista ásamt bresku raftónlistargoðsögnunum úr The

Prodigy sem hefur verið ein vinsælasta rafsveit heims síðan á tíunda áratugnum. Einnig ber að nefna Richard Ashcroft, fyrrum forsprakka The Verve, Pharoahe Monch, Foreign Beggars, Dubfire, Novelist, Dusky og má vænta fleiri stjarna úr raftónlistarheiminum á borð við hústónlistarfrömuðinn Kerri Chandler sem snýr aftur til þess að spila á tónlistarhátíðinni í þriðja skiptið.

Íslendingar eru nú ekki lítið þekktir fyrir sína eigin tónlistarsenu og eiga því að sjálfsögðu sína fulltrúa á hátíðinni en þeir sem staðfest hafa komu sína eru meðal annars Högni, Úlfur Úlfur, Amabadama, Emmsjé Gauti, GKR, Tiny, Aron Can, KSF og Alvia Islandia.

Að auki hafa virtar tónlistarútgáfur á borð við Circoloco, Anjunadeep, Crew Love, ATG og SCI+TEC staðfest komu sína ásamt sínum listamönnum til þess að spila undir miðnætursólinni.

Einsog áður fer tónlistarhátíðin fram á sumarsólstöðunum helgina 15.-18. júní 2017 og mun því sólin ekki setjast á meðan á hátíðinni stendur. Þó þetta kunni að vera eðlislægt fyrir Íslendinga þá hefur þessi sérstaða hátíðarinnar orðið til þess að erlendir ferðamenn sækja hátíðina heim hvaðanæva úr veröldinni, ekki bara vegna tónlistarinnar heldur einnig vegna þessa magnaða náttúrufyrirbæris.

Í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar kemur fram að þeir leggi ríka áherslu á umhverfismál og það er henni mikið mál að minnka kolefnisfótspor sitt til muna.

„Er það því skipuleggjendum Secret Solstice mikill heiður að tilkynna að hátíðin hefur hlotið hinn alþjóðlega CarbonNeutral® gæðastimpil annað árið í röð. Þetta er að miklu leyti að þakka þeirri ákvörðun Secret Solstice að knýja hátíðina með jarðhitarafmagni sem framleitt er á hátíðarsvæðinu sjálfu ásamt því að vega upp á móti losun kolefnis með því að notast einungis við svonefnda hybrid bíla frá Toyota á Íslandi,“ segir í tilkynningunni. 

Miðar á fjórðu tónlistarhátíð Secret Solstice eru þegar komnir í sölu og eru fáanlegir á vefsíðunum Tix.is og Eventbrite fyrir 17.900 krónur.

Fyrsta nöfn tónlistaratriða Secret Solstice 2017 má sjá hér að neðan:

Foo Fighters

The Prodigy

Richard Ashcroft

Dubfire

Pharoahe Monch

Foreign Beggars

Dusky

Kerri Chandler

Rhye

Högni

Kiasmos

Úlfur Úlfur

Soul Clap

John Acquaviva

Wolf + Lamb

Amabadama

Emmsjé Gauti

Tania Vulcano

Droog

Yotto

Novelist

Soffía Björg

Artwork

Klose One

Tiny

BenSol

Shades of Reykjavík

GKR

Aron Can

Dave

Lord Pusswhip

Krysko & Greg Lord [UK]

Hildur

KSF

Alvia Islandia

SXSXSX

Fox Train Safari

Kilo

Captain Syrup

Marteinn


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×