Tónlist

Fönkí tónlist í Gamla bíói

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Samúel Jón Samúelsson Big Band er þekkt fyrir frábæra tónleika.
Samúel Jón Samúelsson Big Band er þekkt fyrir frábæra tónleika. mynd/golli
Hljómsveitin Samúel Jón Samúelsson Big Band heldur tónleika í Gamla bíói í kvöld. Sveitin leikur frumlega frumsamda fönktónlist sem er undir áhrifum frá nígerísku afróbíti, eþíópískum djassi, brasilískum sambatöktum, bandarísku fönki og stórsveitardjassi blandað við íslenska eyjaskeggjaþrjósku sem hefur vakið athygli víða um heim.

SJSBB hefur gefið út fjórar hljómplötur: Legoland árið 2000, Fnykur árið 2007, Helvítis Fokking Funk árið 2010 og 4 Hliðar árið 2012. 4 Hliðar var valin ein af bestu plötum ársins af Árna Matt hjá morgunblaðinu og hlaut fjórar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Plötur sveitarinnar hafa verið gefnar út í Evrópu og Japan.

SJSBB hefur frá árinu 2008 farið árlega í tónleikaferðir til Evrópu og leikið á tónlistarhátíðum á borð við Berlin Jazzfest, London Jazzfestival, Jazzbaltica, Nattjazz og á virtum djassklúbbum eins og Mojo Club, Moods, Porgy & Bess auk kröftugrar spilamennsku hér heima á Jazzhátíð Reykjavíkur og Iceland Airwaves svo nokkuð sé nefnt. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×