Innlent

Fólkið sem flúði brunann bjó í ósamþykktum íbúðum

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Tólf til fimmtán einstaklingar þurftu að flýja húsnæði sitt eftir að eldur kom upp í verslunar- og iðnaðarhúsnæði við Smiðjuveg í nótt. Töluverður eldur og reykur var í húsinu og ljóst að mun verr hefði getað farið. Rauði krossinn útvegaði fólkinu bráðabirgða húsnæði.

Það þykir mildi að ekki hafi orðið meira tjón í nótt en eldurinn virðist hafa komið upp á milli verslunarinnar Rúm gott og Bingó. Töluverður reykur barst inn í verslun Bónus og Apótekarans og sömuleiðis inn í veitingastaðinn Ugly Pizza. Í vesturenda hússins eru ósamþykktar íbúðir þar sem voru 12-15 einstaklingar í nótt og þurftu að flýja út vegna brunans.

Tilkynning barst til Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálf tvö í nótt en eldurinn uppgötvaðist eftir að brunaviðvörunarkerfi fór í gang og fór öryggisvörður á vettvang. Tilkynnti hann um eldinn. 

Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang auk þess sem slökkviliðsmenn á frívakt voru kallaðir út.

„Við vorum svolítinn tíma að átta okkur á því hvað væri í gangi. Við teljum að eldurinn hafi verið í millilofti sem að liggur hérna á milli. Hann þetta hafi byrjað á milli Bingó og Rúm gott,“ sagði Óttar Karlsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á vettvangi í nótt.

Var mikill eldur?

Nei, aðallega reykur. En jú það var eldur líka.Í húsnæðinu er ýmiskonar starfsemi blönduð af verslun og iðnaði. Einnig eru átta íbúðir þar sem einstaklingarnir voru og þurftu sumir þeirra að hlaupa fáklæddir út. 

Áttuð þið von á því að það væri íbúar sem að byggju í þessu húsi?

„Hverju á maður ekki von á í dag? Nei við áttum það svo sem ekki,“ sagði Óttar.

Rauði krossinn var kallaður út og kom íbúunum fyrir í bráðabirgðahúsnæði. Slökkviliðsmenn rufu gat á þak hússins til þess að hleypa hita út og slökkva eldinn sem reyndist að mestu bundinn við milliloft og þak yfir þremur verslunarrýmum.

Slökkvistarf tók um þrjár klukkustundir en miklar skemmdir eru á húsnæðinu og innanstokksmunum vegna elds og reyks. 

Fréttastofan hitti einn af eigendum hússins á vettvangi í nótt.

Hefði getað farið mun verr

Hvernig verður manni um þegar maður tilkynningu um miðja nótt um að húsið sem maður á er að brenna?

„Svona svolítinn hroll. En ég á það nú ekki alveg einn þannig að það eru aðrir sem eiga líka hlut að máli. En manni líður ekkert vel þar sem búið er verið að byggja upp fuðri upp á einni nóttu. Sem betur fer er það ekki þannig í þetta skipti,“ segir Magnús Geirsson, einn eigenda hússins að Smiðjuvegi. 

Þegar fréttastofan skoðaði aðstæður í dag má sjá að mun verr hefði getað farið hefði eldurinn náð að breiðast út en ljós er að starfsemi nokkurra fyrirtækja kemur til með að raskast vegna brunans.

Eldsupptök eru ókunn og rannsakar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tildrög brunans.


Tengdar fréttir

Mikil mildi að ekki hafi farið verr

Mildi þykir að ekki hafi orðið stórbruni þegar eldur kom upp í verslunarhúsnæði að Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×