Skoðun

Fólkið í borginni er komið með nóg

Áslaug Friðriksdóttir skrifar
Ekkert lát er á því hvernig borgarstjórn seilist í veski og pyngjur borgarbúa en í staðinn er þjónustan af skornum skammti. Hvernig stendur á því að þegar íbúar borgarinnar borga meira en nokkurn tíma áður í borgarsjóð að þjónustan sem þeim stendur til boða standi svona höllum fæti.

Almenn þjónusta á einfaldlega að virka

Meginþorri borgarbúa vill fá að vera í friði og komast í gegnum sín daglegu verkefni án þess að ákvarðanir í borgarstjórn séu þar að flækjast fyrir. Þeir eru ekki kröfuharðir. Það eina sem þeir vilja er að almenn þjónusta virki. Sveitarfélag hefur ekki svo flóknum skyldum að gegna. Megináherslan á að vera að aðstoða fólk að komast leiðar sinnar, hreinsa, sópa og salta götur og stíga eftir þörfum og sinna viðhaldi gatnakerfisins. Sinna sorphirðu þannig að vel sé, veita öldruðum og fötluðum mannsæmandi þjónustu. Tryggja að skólakerfið veiti börnum nauðsynlega menntun og leikskólabörnum vist svo foreldrar komist til vinnu sinnar. Þetta er ekki flókið.

Kannski finnst meirihlutanum í Reykjavík þetta ekki nógu spennandi verkefni. Alla vega geta þau seint kallast uppáhaldsverkefni hans. Upplifun íbúanna í borginni er að þeir þurfi að greiða borgarsjóði af tekjum sínum í stórum stíl en fái ekki sanngjarna þjónustu fyrir. Þetta viðhorf er afar slæmt og til þess fallið að veikja samstöðu íbúa við uppbyggingu og þróun þjónustu í borginni. Þeir sem sest hefðu að í borginni taka frekar þá ákvörðun að fara annað þar sem þjónustan er til staðar. Um leið fjölgar útsvarsgreiðendum ekki í borginni og geta til að reka sterkt velferðar- og skólakerfi veikist.

Virðingu á að bera fyrir fjármunum borgarbúa

Á næsta kjörtímabili þarf að kjósa forystu sem ber virðingu fyrir fjármunum borgarbúa. Sú virðing er ein meginforsenda þess að fólk sé tilbúið til að leggja fé til sameiginlegra sjóða. Og það að fólk sé tilbúið til þess er grundvöllur velferðarkerfisins sem við þekkjum.

Reksturinn þarf að taka föstum tökum og gera sjálfbæran. Þau skilaboð er að finna frá fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar í fjárhagsáætlunum síðustu ára. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað bent á þetta fyrir daufum eyrum meirihlutans. Svo virðist sem þeim finnist önnur verkefni skemmtilegri.

Í komandi kosningum verður að skipta um meirihluta í Reykjavík. Meirihluta sem tekur grunnþjónustumálin alvarlega og snýr alvarlegri þróun í borginni við. Sjálfstæðismenn velja sér leiðtoga til þess verkefnis í komandi prófkjöri. Nauðsynlegt er að velja leiðtoga sem hefur hugrekki og ákveðni til að knýja breytingar fram og nær til breiðs kjósendahóps í kosningunum í vor. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að sækja fylgi til að komast í meirihluta og út frá því þarf að velja leiðtoga. Ég býð mig fram, hef þá eiginleika sem þarf til að stýra verkefninu í höfn í þágu borgarbúa og óska eftir stuðningi til þess í komandi leiðtogaprófkjör Sjálfstæðisflokksins.

 

Höfundur er borgarfulltrúi og frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×