Fótbolti

Fólkið á skilið að fá góðan leik frá okkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kolbeinn hefur skorað tvö mörk í undankeppni EM 2016.
Kolbeinn hefur skorað tvö mörk í undankeppni EM 2016. vísir/ernir
Kolbeinn Sigþórsson verður með fyrirliðabandið þegar Ísland tekur á móti Lettlandi á Laugardalsvellinum klukkan 16.00 í dag. Þetta verður í fyrsta sinn sem Kolbeinn leiðir íslenska liðið út á völlinn í alvöruleik en Aron Einar hefur farið fyrir sínum mönnum í síðustu sextán leikjum íslenska liðsins í undankeppnum HM og EM.

Íslenska liðið tryggði sér sæti á EM með jafntefli á móti Kasakstan í síðasta leik en er enn í baraáttunni við Tékkland um sigurinn í riðlinum. „Í raun hefur þessi vika ekkert verið öðruvísi. Við reynum að nálgast þessa leiki eins og við höfum gert fyrir hvern einasta leik. Við förum í hvern einasta leik til að vinna hann og reynum að halda einbeitingu eins og fyrir alla aðra leiki,“ sagði Kolbeinn Sigþórsson á blaðamannafundi í gær.

Kolbeinn segir íslensku strákana staðráðna í að halda fótunum á bensíngjöfinni og viðhalda góðu gengi íslenska liðsins í undankeppninni. „Við erum komnir á EM en við viljum ná öðrum markmiðum. Ég held að það viti allir hvaða markmið það eru en það er að ná þriðja styrkleikaflokki,“ sagði Kolbeinn og er þá að vísa til þess þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppninni í Frakklandi.

Íslenski framherjinn sér þennan leik einnig sem upphafið að undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið sem hefst eftir aðeins átta mánuði.

„Við þurfum líka að undirbúa okkur fyrir Evrópukeppnina og reyna að bæta okkur sem lið. Við þurfum að halda einbeitingunni og nýta hvern einasta leik til að bæta okkar leik,“ sagði Kolbeinn.

Hann hefur ekki þurft að breyta miklu hjá sér þótt hann sé orðinn fyrirliði. „Hvort ég sé fyrirliðinn eða Aron skiptir ekki máli. Aron er okkar fyrirliði og því miður er hann ekki með í þessum leik. Það er gaman fyrir mig að vera fyrirliði í þessum síðasta leik fyrir framan þjóðina og við ætlum bara að klára þetta almennilega. Stuðningsmennirnir eiga góðan leik skilinn núna og við viljum enda þetta vel hérna heima,“ sagði Kolbeinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×