Lífið

Fólkið á Airwaves: Slepptu þrettándu Coachella-hátíðinni og skelltu sér til Íslands

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hjónin Brandon Lopez og Meishya Yang frá Kaliforníu lofa land og þjóð.
Hjónin Brandon Lopez og Meishya Yang frá Kaliforníu lofa land og þjóð. Vísir/KTD
Hjónin Brandon Lopez og Meishya Yang frá Kaliforníu í Bandaríkjunum eru í fyrsta skipti á Íslandi og láta vel af dvöl sinni hér á landi. Þau eru miklir tónlistarspekúlantar og hlakka til Iceland Airwaves.

„Ég vissi ekkert á hverju ég átti von og trúi varla hve þægilegt það var að koma hingað og njóta lífsins í svo fallegu og gestrisnu landi,“ segir Brandon uppnuminn. Þau lentu á mánudagsmorgun og skelltu sér beint í Bláa lónið.

„Við vorum í heitu vatninu og sáum sólina rísa. Þetta var hin fullkomna leið til að slaka á eftir langt flug,“ segir Meishya. Í framhaldinu tók flugþreytan yfir og við tók góður blundur.

Vök spilaði Hörpu í gærkvöldi og þangað mættu Barndon og Meishya.

Allir að pæla í tónlistinni

Hjónakornin eru búin að fara í skipulagða ferð um Suðurlandið auk þess að rölta um Reykjavík og kynnast höfuðborginni.

„Landslagið hérna er stórkostlegt,“ segja þau og minnast sérstaklega á fossana og ströndina. Meishya segist hafa kynnt sér landið nokkuð vel áður en þau komu hingað.

„Við eigum vini sem hafa farið á Airwaves og þau fullyrtu að þetta væri skemmtilegasta tónlistarhátíð sem þau hefðu farið á. Það tók þau ekki langan tíma að sannfæra okkur,“ segir Meishya.

Brandon segir að vel megi flokka þau hjónin sem tónlistarnörd og hér séu þau á heimavelli. Þau fari til að mynda árlega á Coachella tónlistarhátíðina í Palm Springs.

„Við höfum líklega farið á hverju ári tólf ár í röð. Nú ákváðum við að breyta til. Ég er mjög ánægður með að við gerðum það,“ segir Brandon. Coachella sé orðin meiri partýhátíð en hérna séu allir að pæla í tónlistinni. „Ég elska það!“

Frá Coachella-hátíðinni í apríl.

Hið fullkomna plan í vinnslu

Kanarnir voru á leiðinni á tónleika með Vök í Hörpu í gærkvöldi og voru mjög spennt fyrir sveitinni. Þá ætla þau líka að sjá Sóley, Beach House og FM Belfast.

„Fólk hefur líka mælt með því að sjá Retro Stefson svo við hlökkum til þess.“

Þau segjast elska blönduna af hljómsveitum sem sé að finna á Airwaves. Tónlist úr öllum áttum, bæði íslensk tónlist sem hitti í mark hjá þeim en einnig flottar erlendar sveitir. Blandan sé fullkomin fyrir tónlistarsnobbara segja þau hlæjandi.

Sóley spilaði fyrir fullu húsi á Slippbarnum í dag.

Sóley in a packed Slippbarinn during our off venue programme.

Posted by Iceland Airwaves Music Festival on Thursday, November 5, 2015
Aðspurð hvort þau séu komin með hið fullkomna skipulag fyrir tónleikahátíðina segist Meishya hafa gert tilraun til þess. Hún hafi miðað við að þau hefðu alltaf klukkutíma til að komast á milli staða. Hún sé þó ekki viss um að það dugi.

„Ég er með nokkur bönd sem við ætlum alls ekki að missa af. Svo ræðst hitt bara,“ segir hún og lofar dvölina til þessa líkt og Brandon.

Iceland Airwaves hófst í gær og stendur fram á sunnudag. 240 listamenn koma fram á 293 tónleikum á þrettán stöðum. Gestir verða um 9000 en löngu er uppselt á hátíðina. Þá fer mikill fjöldi tónleika fram utan dagskrár, svokölluð „off venue“ dagskrá. Ókeypis er inn á viðburði hennar.Dagskrána má sjá hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×