Matur

Fólk vill ekki lengur svikinn héra

Guðný Hrönn skrifar
Fannar Arnarsson og Guðmundur Óli Sigurjónsson eru matreiðslumenn Matarkompanís.
Fannar Arnarsson og Guðmundur Óli Sigurjónsson eru matreiðslumenn Matarkompanís. Vísir/Ernir
Matreiðslumaðurinn Fannar Arnarsson, annar eigandi fyrirtækja- og veisluþjónustunnar Matarkompanís, segir fyrirtæki sitt vera frábrugðið öðrum fyrirtækjum í þessum geira þar sem Matarkompaní bíður upp á töluvert ferskari og nútímalegri mat en gengur og gerist.

Fannar eldar allan matinn frá Matarkompaníi frá grunni ásamt Guðmundur Óla Sigurjónssyni. „Við komum frá fínum veitingastöðum og viljum rífa standardinn upp í þessum bransa. „Við erum ekki að bjóða upp á neinar kjötbollur og brúna sósu eins og þekkist gjarnan í þessum geira,“ segir Fannar.

„Okkar matur er nútímalegur, fínn og hollur. Við erum ekki með neitt djúpsteikt, við bökum allt sjálfir og gerum engar mæjónessósur. Svo nota ég ekki frosið grænmeti.“

Fannar segir fyrirtækið fara vel af stað og það var greinilega eftirspurn eftir ferskari mat í fyrirtækja- og veisluþjónustu. „Já, þetta fer dúndrandi vel af stað. Okkur fannst þessi bransi vera dauður og þess vegna fór ég í þetta. Mér fannst engin samkeppni í þessu. Fólk nú til dags vill bara ferskan og góðan mat, það vill enginn kjötbollur og svikinn héra, fyrir utan gamla karla,“ segir Fannar.

Meðfylgjandi er uppskrift af laxarétt sem Fannar og Guðmundur reiddu fram fyrir lesendur. Fannar segir hvern sem er geta eldað þennan rétt. „Já, alveg klárlega, þetta geta allir gert.“

Gómsætur lax sem allir geta reitt fram.Vísir/Ernir
Dillmarineraður lax

Fyrir tvo

Lax 400 gr

150 gr. bygg

Marinering á lax:

50 gr. dill

50 gr. olía

1tsk lime (safinn og rifinn börkurinn)

Bygg-dressing:

70 gr. sólþurrkaðir tómatar

½ hvítlauksgeiri

30 gr. basilíkka

salt eftir smekk

Grísk Jógúrtsósa:

200 gr. grískt jógúrt

rifinn lime börkur eftir smekk

30 gr. dill, smátt saxað

Salthnetu-dillcrumble:

65 gr. dill, smátt saxað

50 gr. salthnetur

Aðferð:

Laxinn er skorinn niður í tvær steikur. Hráefnið í mareneringuna fer allt í blandara og maukað saman. Byggið er soðið í potti í 45 mínútur. Hráefnið í bygg-dressing sett í blandara þar til verður að grófu mauki, dressingin er svo sett yfir byggið. Hráefnið í grísku jógúrtsósunni er allt hrært saman og smakkað með salti. Hráefnið í salthnetu-dillcrumble sett í matvinnsluvél. Laxinn er svo eldaður inni í ofn í 8 til 12 mínútur, eftir þykkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×