Menning

Fólk vill eðlilega heyra eitthvað kunnuglegt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég hef trú á þessu prógrammi, að það muni engum þykja leiðinlegt,“ segir Kári.
"Ég hef trú á þessu prógrammi, að það muni engum þykja leiðinlegt,“ segir Kári. Vísir/Anton
Kári Allansson, organisti við Háteigskirkju, leikur á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju í dag.

„Það þýðir ekkert að spila eitthvað tyrfið á svona hálftíma tónleikum þar sem meirihluti áheyrenda er túristar,“ segir hann og kveðst ætla að spila Tokkötu og fúgu í d-moll eftir Bach, tónlist sem allir þekki.

„Svo smygla ég inn smá Magnúsi Blöndal þótt hann sé ekki eins þekktur á alþjóðavísu og ætla að spila afskaplega fallegt og innhverft Adagio eftir hann. Það er hálfgerð hugleiðslutónlist, mjög aðgengilegt stykki. Mamma var mjög hrifin þegar ég spilaði það fyrir hana.

Enda svo á tilbrigðum við hinn hressa og skemmtilega sálm Danke für diesen guten Morgen – eða Þakkir fyrir þennan góða morgun eftir Susanne Kugelmeier. Það er eitthvað sem Þjóðverjar tengja vel við. Í þeirri músík bregður líka fyrir stefjum sem allir kannast við, þar eru Mozart, Bach og endurreisnardansar.

Ég hef trú á þessu prógrammi og að engum muni þykja það leiðinlegt. Orgelið er líka glæsilegt og stendur alltaf fyrir sínu.“

Kári hefur haldið einleikstónleika hérlendis og í Svíþjóð en hann leikur einnig annars konar tónlist en kirkjulega með ýmsum hljómsveitum. Hann kveðst áður hafa spilað á hádegistónleikum og verið ánægður með eigið framlag, þar sem hann hafi spilað fuglasöng, hvað þá annað. Stykkið hafi hins vegar verið of framandi fyrir fólkið í salnum og því hafi ánægjan ekki verið nógu almenn. „Fólk vill eðlilega heyra eitthvað kunnuglegt.“

Kári er síðastur í röð íslenskra organista sem leika á fimmtudagstónleikaröð Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju í sumar.

Tónleikarnir hefjast klukkan 12 og það kostar 2.000 krónur inn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×