Innlent

Fólk þarf að búa sig undir tafir á flugi á miðvikudag

Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar
Búast má við töfum á öllu flugi á miðvikudag.
Búast má við töfum á öllu flugi á miðvikudag.
Enginn samningafundur er boðaður hjá ríkissáttasemjara um helgina í kjaradeilum flugmálastarfsmanna.

Kristján Jóhannsson, formaður félags flugmálastarfsmanna, segir að þeir séu að fara yfir tilboð sem barst frá Isavia nýlega.

Hann segir ljóst að tilboðið gangi ekki eins langt og flugmálastarfsmenn hefðu kosið en þó sé mögulegt að samningar muni nást á þriðjudag.

Þó sé ljóst að fólk verði að vera búið undir tafir á flugi frá miðvikudegi, þegar fyrirhugað verkfall er boðað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×