Skoðun

Fólk og fjármagn

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Miklar pólitískar hræringar hafa orðið eftir efnahagskreppuna, ekki einungis á Íslandi heldur um alla Evrópu. Sumir vilja nú meina að vinstri og hægri séu ekki lengur gild hugtök í pólitísku landslagi samtímans. Ég er ósammála því. Fyrir mér snúast átök vinstri og hægri um átök fólks og fjármagns. Þar er hlutverk vinstrimanna að vera þjónar fólksins; stuðla að almannahag í öllum sínum störfum en þjóna ekki aðeins fjármagninu.

Fjármagnsöflin hafa náð æ sterkari tökum á samfélaginu seinustu áratugi. Það hefur til dæmis gerst með einkavæðingu almannaþjónustu, regluverk hefur verið sniðið að þörfum stórfyrirtækja og lýðræðislega kjörnir fulltrúar hafa veigrað sér við að stíga mikilvæg skref, t.d. til að sporna gegn loftslagsbreytingum, til að styggja ekki stórfyrirtæki. Núna þegar Grikkir standa frammi fyrir örlagaríkum ákvörðunum um framtíð sína er mikilvægt að hafa í huga að það er stjórnmálamannanna að tryggja að fólkið sjálft ráði framtíð sinni, ekki einvörðungu stórfyrirtæki og fjármagnsöfl.

Þessi átakalína gæti dýpkað enn í framtíðinni. Þegar eignir og auður safnast á æ færri hendur mun að sjálfsögðu verða tekist á um þann ójöfnuð og misrétti. Ríkasta eina prósent heimsins á nú þegar helming alls auðs mannkyns. Ríkustu tíu prósent Íslendinga eiga meira en 70% alls auðsins þannig að þróunin hefur verið sú sama hér á landi. Það er eðlilegt að almenningur berjist gegn þessu ranglæti. Á sama tíma mun almenningur þurfa að takast á við loftslagsbreytingar þar sem erfiðara verður en áður að nýta auðlindir jarðar til að sjá öllum farborða.

Ef við viljum aukna sátt og velsæld í samfélaginu ætti það að vera brýnasta verkefni stjórnmálanna að endurútdeila auðæfum. Taka afstöðu með fólki gegn fjármagnsöflum þannig að auðæfin dreifist með jafnari hætti, almannahagur verði tryggður og um leið almenn hagsæld því aukinn jöfnuður og öflugt velferðarkerfi tryggja hana. Á sama tíma þarf að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda til þess að skapa traustan grunn til framtíðar.

Um þetta snúast hugmyndafræðileg átök samtímans. Hvort sem við köllum þau átök hægri og vinstri eða átök fólks og fjármagns. Þar þarf leiðarljósið að vera almannahagur en ekki hagur fjármagnsaflanna.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×