Viðskipti innlent

Fokker-vélar ódýrar en á leið úr landi

Snærós Sindradóttir skrifar
Flugfélag Íslands er ekki byrjað að selja Fokker-flugvélarnar sínar fimm en stefnt er að því að skipta þeim út fyrir Bombard­ier Q400 vélar innan tíðar.

Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
„Þær eru enn í notkun hjá okkur og verða þar til hinar vélarnar koma. Þannig að þær verða hjá okkur að minnsta kosti fram á vor,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.

Framleiðandi Fokker-véla varð gjaldþrota árið 1996. Flugvélunum, sem eru 25 ára, hefur þó verið sinnt með varahluti og viðhald. „Það var sem sagt ekki um að ræða að yngja upp af sömu tegund. Það var kominn tími á það að skipta um týpu og þá ákváðum við að fara í Bombard­ier. Við höfum undanfarin tíu ár verið með minni útgáfu af þeirri vél og höfðum haft góða reynslu af þeim. Það lá því beint við að taka stærri útgáfuna sem er rúmlega sjötíu sæta vél,“ segir Árni.

Hann segir markaðsverðið fyrir Fokker-vélarnar ekki vera hátt. „En við gerum ráð fyrir því að geta losað þær út hjá okkur þegar þar að kemur.“ Flugfélag Íslands seldi eina Fokker-vél á síðasta ári en Árni vill ekki gefa upp hvað fékkst fyrir hana. „Markaðsverð á svona vélum er kannski í kringum eina til tvær milljónir dollara. Ef við orðum það þannig.“

Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu í júlí sagði: „Heildarfjárfestingin mun hækka heildareignir Icelandair Group samstæðunnar um 25 milljónir dollara, að teknu tilliti til söluverðs allra fimm Fokker 50 flugvéla Flugfélags Íslands.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×