Fastir pennar

Fokk kjararáð, gljáð jólabráð

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Í dag eru sjö vikur til jóla.

Hverjum er ekki sama hvaða jólasveinn verður forsætisráðherra?

Tortóla hvað?

Málið er jóla hvað? Fokk kjararáð, gljáð jólabráð. Kosningafirra, reykelsi og myrra.

Emm ess, jólastress. Pólitísk spilling, kalkúnafylling. Bjarni Ben, amen.

Tökum saman lagið, burt með allt jagið. Allir saman nú:

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig litlar telpur gera:

Vagga brúðu, vagga brúðu

-og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig litlir þingmenn gera:

Gefa Borgun, gleymt á morgun

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig ráðherrar aur sinn geyma:

Í skjóli skatta, en ekkert fatta

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig kvótakóngar gera:

Hirða aflann og kaupa Moggann

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig mafían landsmenn mjólkar:

Engan valkost, bara brauðost

-og svo snýr hún sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig leiðir landar gera:

Berj' í potta, ver' ei motta

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig svipular sálir gera:

Öllu gleyma, hætt' að veina

-og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig þekkir þegnar kjósa:

Sama gamla má brjóta og bramla

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig spilltir valdsmenn gera:

Koma aftur, kló og kjaftur

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig kjarahvuttar gera:

Þeir sig hneigja, bukt' og beygja

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig gamlir þingmenn gera:

Biðj' um bitling, fyrir helling

-og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja

hvernig þingmenn við þjóð gera:

Taka í nefið, taka í nefið

-og svo snúa þeir sér í hring.

AAATSJÚ!



Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.






×