Fokdýrir miđar á Meistaradeildarleiki FC Köbenhavn en gríđarleg eftirspurn

Vísir Meistaradeildin 04. september 2010 19:00
Sölvi í leik međ FCK í Meistaradeildinni.
Sölvi í leik međ FCK í Meistaradeildinni. GettyImages
Hjalti Ţór Hreinsson skrifar:
Stuðningsmenn FC Köbenhavn bíða spenntir eftir að liðið sitt, með Sölva Geir Ottesen fyrirliða íslenska landsliðsins innanborðs, hefji leik í Meistaradeild Evrópu eftir tvær vikur.

Miðaverðið á leikina er ansi hátt og blöskrar mörgum stuðningsmönnum.

Á fyrsta heimaleikinn gegn Rubin Kazan kostar frá 500 til 900 danskrar krónur, rúmlega 10 þúsund til rúmlega 18 þúsund íslenskrar krónur.

Leikurinn stóri gegn Barcelona mun trekkja að, en miðaverð á hann gæti farið upp í 3000 danskar krónur, yfir 61 þúsund íslenskar.

Það verður erfitt að fá miða á leikinn og þegar hafa verið auglýstir miðar til sölu á svörtum markaði á 10 þúsund danskar, rúmlega 200 þúsund íslenskar krónur.

Talið er að 144 þúsund stuðningsmenn sækist eftir aðeins 9000 miðum sem fara í almenna sölu fljótlega. Liðið spilar á Parken sem tekur alls 38 þúsund manns í sæti.

Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Fokdýrir miđar á Meistaradeildarleiki FC Köbenhavn en gríđarleg eftirspurn