Menning

Fögnum nýju ári með söngaríum og freyðivíni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sveitin Elektra er orðin leikskólabarn og er alveg að detta í að verða grunnskólabarn,“ segir Ástríður Alda sem er lengst til hægri á myndinni.
Sveitin Elektra er orðin leikskólabarn og er alveg að detta í að verða grunnskólabarn,“ segir Ástríður Alda sem er lengst til hægri á myndinni. Mynd/Spessi
„Við munum flytja efnisskrá sem höfðar til fjölbreytts hóps áheyrenda og fagna nýju ári á eftir með freyðivíni, kaffi og meððí,“ segir Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari. Hún er í sveitinni Elektra Ensemble sem verður með nýárstónleika á Kjarvalsstöðum á morgun, sunnudag klukkan 20. Ástríður Alda segir þá orðna að föstum lið í byrjun árs. „Þetta eru alltaf vinsælustu tónleikarnir okkar,“ segir hún glaðlega.



Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona syngur með sveitinni að þessu sinni. Hún mun flytja vinsæl lög og aríur úr óperettum og söngleikjum eftir Johann Strauss, Luigi Arditi, George Gershwin, Kurt Weill og Leonard Bernstein.

„Þetta er í fyrsta skipti sem Hallveig syngur með okkur, hún er alveg stórkostleg í þessu prógrammi og við unnum það í samstarfi við hana,“ segir Ástríður Alda og kveðst lofa góðum tónleikum.



Elektra Ensemble var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árið 2009 og gekk í kjölfarið til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum. „Elektra er orðin leikskólabarn og er alveg að detta í að verða grunnskólabarn,“ segir Ástríður Alda hlæjandi.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20 annað kvöld. Flytjendur ásamt Hallveigu og Ástríði Öldu eru Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Rúnar Óskarsson klarínettuleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari. Almennt miðaverð er 2.500, en 2000 krónur fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×