Lífið

Fögnuðu Vísum og brotthvarfi kommentakerfisins

Tinni Sveinsson skrifar
Í gærkvöldi var haldið útgáfuhóf fyrir rafrænu ljóðabókina Vísur eftir Birki Blæ Ingólfsson, sem kom út hér á Vísi í gærdag.

Ljóðabókin er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum en með því að hala niður litlu forriti, birtist hún í stað hefðbundins kommentakerfis hér á Vísi.

Birkir Blær gefur bókina út í samstarfi við Vísi og útgáfufélagið Meðgönguljóð. Hönnun bókarinnar var í höndum Katrínar Helenu Jónsdóttur en það var Jón Eðvald Vignisson sem hannaði hugbúnaðinn.

Í tilefni útgáfunnar var boðið til hófs á skemmtistaðnum Húrra í gærkvöldi þar sem Birkir Blær las upp nokkur ljóð. Hann gerði síðan gott betur og steig á stokk með jazzhljómsveit sinni og spilaði nokkur lög en hann er fær saxófónleikari.

Ljósmyndarinn Friðrik Fr. smellti nokkrum myndum af gestunum sem sjá má hér fyrir ofan.

Ljóðabók af þessu tagi er líklega hin fyrsta sinnar tegundar í heiminum en Birkir er búinn að ganga með þessa hugmynd í kollinum í einhvern tíma.

„Á Íslandi koma út fjölmargar ljóðabækur á hverju ári, en ég er ekki viss um að margir gefi sér tíma til að lesa þau,“ segir Birkir. 

„Kannski er það vegna þess að enginn hefur áhuga á ljóðum lengur. En kannski er það vegna þess að enginn nennir að gera sér ferð út í bókabúð. Fólk lifir og hrærist inni á internetinu og þetta er tilraun til að sjanghæja ljóðum inn í þann veruleika.“ 

Ljóðabókina er hægt að skoða í Google Chrome-vafra með því að sækja vafraviðbót í Chrome Web Store. Hún birtist síðan fyrir neðan fréttir í Lífinu á Vísi, ljóð fyrir ljóð. Þegar lesandi er kominn út að enda bókarinnar hverfur hún úr vafranum og hefðbundið kommentakerfi birtist aftur.

Við hvetjum fólk til að ná í þessa skemmtilegu ljóðabók en hægt er að nálgast hana hér.


Tengdar fréttir

Skiptir út kommentakerfinu fyrir ljóð

Birkir Blær Ingólfsson gefur út ljóðabók í dag sem eingöngu er hægt að nálgast á fréttavef Vísis þar sem lesendur geta skipt athugasemdakerfinu út fyrir ljóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×