Lífið

Fögnuðu fram á nótt í Eyjum enda Páll á leiðinni á þing

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Magnússon á greinilega gott bakland á Heimaey enda Eyjamaður mikill.
Páll Magnússon á greinilega gott bakland á Heimaey enda Eyjamaður mikill. Mynd/Håkon Broder Lund
Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og fréttamaður, mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi eftir yfirburðarsigur í baráttunni um oddvitasætið í prófkjörinu sem lauk í gær. Lokatölur lágu ekki fyrir fyrr en seint í nótt en þá kom í ljós að Páll hafði hlotið 1771 atkvæði í 1. sætið en 3901 greiddi atkvæði í prófkjörinu.

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra hlaut 1021 atkvæði í 1. sætið og hafnaði í fjórða sæti listans. Ljóst er að úrslitin eru mikil tíðindi enda vel mögulegt að sitjandi ráðherra komist ekki inn á þing. Ásmundur Friðriksson hafnaði í 2. sæti og Vilhjálmur Árnason í því þriðja. Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður flokksins, hafnaði í fimmta sæti listans.

Karlmenn eru því í þremur efstu sætunum og gæti varið svo að kjörnefnd ákveði að breyta röðun á listanum með tilliti til kynja. Vilhjálmi Bjarnasyni, sem hafnaði í fjórða sæti listans í Kraganum, líst ekki vel á að leikreglunum sé breytt eftir á, eins og hann orðar það í samtali við Vísi.

Fjögur efstu sæti flokksins í Kraganum eru skipuð karlmönnum og má segja að konur í Sjálfstæðisflokknum hafi beðið afhroð í kosningunum í Suður- og Suðvesturkjördæmi.

Sjá einnig:Formaður Landsambands Sjálfstæðiskvenna í sjokki

Páll, sem tilkynnti framboð sitt fyrir sléttum mánuði, sagðist í samtali við Vísi í nótt hrærður yfir þeim mikla stuðningi sem hann hefði fengið.

„Þetta er atrenna að kosningunum sem eru það sem skipta mestu máli.“

Um 200 manna veisla var haldin á kosningaskrifstofu Páls á Heimaey í gærkvöldi og fram á nótt. Þar var glatt á hjalla eins og sjá má á myndunum að neðan sem Håkon Broder Lund tók.

Vísir hvetur þátttakendur í prófkjöri allra flokka til að senda inn myndir frá kosningabaráttunni á ritstjorn@visir.is.



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×