Lífið

Fögnuðu 70 ára brúðkaupsafmæli með myndatökunni sem þau fengu aldrei

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg hjón hér á ferð.
Falleg hjón hér á ferð.
Ferris og Margaret Romaire giftu sig árið 1946 og héldu á dögunum upp á sjötíu ára brúðkaupsafmæli. Amanda Kleckley, barnabarn hjónanna, skipulagði sérstaka brúðkaupsmyndatöku á dögunum en á sínum tíma voru ekki teknar neinar ljósmyndir af þeim.

Amanda hafði samband við ljósmyndarann Lara Carter og fékk hana til að hitta sig og Romaire hjónin í Pearland í Texas þann 12. október síðastliðinn. Ferris er 90 ára og eiginkona hans Margaret 89 ára. Þau giftu sig aftur á móti 24. nóvember árið 1946.

Parið geislaði alveg í myndatökunni en miðilinn Huffington Post fjallar um málið á vefsíðu sinni. Þar má sjá allar myndirnar úr tökunni.

„Maður sér augljóslega hversu mikið þau elska hvort annað,“ segir Lara Carter í samtali við Huffington Post.

„Þau hlógu svo fallega saman eftir því sem leið á myndatökuna. Þau eru ótrúlega fallegt dæmi um hvernig hjónaband getur verið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×