Viðskipti innlent

FME vísar máli Borgunar til héraðssaksóknara

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Málið varðar lög um eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Málið varðar lög um eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Vísir/Ernir
Fjármálaeftirlitið hefur kært greiðslukortafyrirtækið Borgun hf. til embættis héraðssaksóknara vegna máls sem varðar eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Vísi, en RÚV greindi fyrst frá.

Málið barst á borð Ólafs Þór í gær, en aðspurður segist hann ekki muna eftir sambærilegu máli. Nú sé unnið að því að safna gögnum í málinu og að greiningarvinna sé að hefjast. Ómögulegt sé hins vegar að segja til um hvenær niðurstöðu sé að vænta.

Fjármálaeftirlitið tilkynnti á föstudag um að gerðar hafi verið athugasemdir við verklag og eftirlit vegna viðskipta við nokkra af viðskiptavinum Borgunar á erlendum mörkuðum. Gerðar voru athugasemdir við að Borgun hefði, í tilviki 13 viðskiptamanna af 16, ekki framkvæmt könnun á áreiðanleika upplýsinga um viðskiptamanna með fullnægjandi hætti áður en samningssambandi var komið á.

Borgun sagðist í yfirlýsingu taka þessum athugasemdum alvarlega. Þá verði stefnt að því að allri vinnu af hálfu Borgunar til að uppfylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mánaða.

Embætti héraðssaksóknara mun rannsaka málið og svo taka ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra.


Tengdar fréttir

Borgun hagnaðist um rúma sex milljarða vegna sölunnar á Visa Europe

Kortafyrirtækið Borgun hagnaðist um alls 7,8 milljarða króna á árinu 2016 en þar af komu 6,2 milljarðar vegna sölu Visa Europe til Visa Inc. Hagnaður af reglulegri starfsemi var því 1,6 milljarðar króna en frá þessu var greint á aðalfundi Borgunar í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×