Fjármálaeftirlitið (FME) hefur samþykkt það ferli sem danska félagið William Demant Invest (WDI) ætlar að nota til að gera öðrum hluthöfum í Össuri hf. valfrjálst tilboð í alla hluti þeirra.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt hefur verið á vefsíðu FME. Á vefsíðu FME segir að "Þrátt fyrir gildandi samning á milli Fjármálaeftirlitsins og NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) um að síðarnefndi aðilinn (WDI) staðfesti almennt tilboðsyfirlit, hafa Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin gert með sér samkomulag um að í þessu tilviki staðfesti Fjármálaeftirlitið tilboðsyfirlitið."
Fyrir tveimur vikum sendi WDI frá sér yfirlýsingu um málið og þar kom fram að tilboð félagsins væri til komið þar sem hlutur WDI í Össuri fer að öllum líkindum brátt yfir 40% markið sem myndar yfirtökuskyldu samkvæmt lögum um hlutabréfaviðskipti. Sem stendur á WDI 39,58% hlut í Össuri. WDI hefur hinsvegar ekki áhuga á að kaupa Össur í heild en vill eiga 40-50% í félaginu í framtíðinni.
Á vefsíðu Össurar segir að WDI muni, ef ferlið er samþykkt, setja innan fjögurra daga tilboð sitt fram en það felur í sér að WDI kaupir hluti í Össuri á 202 kr. stykkið eða 8,2 danskar kr. og verður greitt fyrir hlutina með reiðufé. Gengi á hlutum Össurar er hinsvegar 210 kr. á hlut í augnablikinu í Kauphöllinni.
Í tilkynningu sem birtist vefsíðu Össurar þann 22. maí s.l. kemur fram að þessi áform WDI muni ekki hafa nein áhrif á starfsemi Össurar hf. eða starfsmenn félagsins. Þá hefur WDI ekki í hyggju að afskrá Össur né breyta samþykktum félagsins í tengslum við tilboðið.