Innlent

Flytur Guðrúnu frítt á elliheimili

kristjana björg guðbrandsdóttir skrifar
Barátta Guðrúnar fyrir betri kjörum skilar sér.
Barátta Guðrúnar fyrir betri kjörum skilar sér. Vísir/Ernir
Flutningabílstjóri í Reykjavík vill aðstoða Guðrúnu Einarsdóttur, 82 ára gamla konu, sem segist ekki hafa ráð á að flytja á hjúkrunarheimili.

Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var Guðrúnu sagt að hún þyrfti að láta rúmar fimmtíu þúsund krónur duga í framfærslu vegna fimm mánaða dvalar á Vífilsstaðaspítala.

„Mig langar að bjóða fram mína starfskrafta án endurgjalds við flutning fyrir hana þegar henni verður úthlutað plássi á hjúkrunarheimili,“ segir flutningabílstjórinn. Hann leggur líka til mannskap, kassa og allt sem til þarf í flutninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×