Innlent

Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Fólkið var flutt á FSA til aðhlynningar
Fólkið var flutt á FSA til aðhlynningar Vísir/kk
Hjón og tvö börn þeirra voru flutt til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir að bíll þeirra valt á hringveginum um Öxnadal á tíunda tímanum í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega en fólkið er, eins og gefur að skilja, skelkað eftir slysið.

Tildrög slyssins eru óljós en engin hálka var á veginum að sögn lögreglunnar á Akureyri. Ökutækið er talsvert skemmt eða óökufært.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×