Innlent

Flutningaskip á reki á Faxaflóa

Gissur Sigurðsson skrifar
Skipið sem um ræðir er stórt flutningaskip, líkt og þetta sem myndin er af.
Skipið sem um ræðir er stórt flutningaskip, líkt og þetta sem myndin er af. Samskip
Stórt flutningaskip með 18 manna áhöfn er nú á reki á Faxalóa, um það bil 15 sjómílur suður af Arnarstapa, eftir að bilun varð í aðalvél þess í gærkvöldi.

Þegar ljóst varð að skipverjum tækist ekki að lagfæra biluninaa óskaði skipstjórinn eftir aðstoð klukkan þrjú í nótt og er nú verið að búa varðskipið Þór til að sækja skipið og draga það til hafnar. Það er á hægu reki til austurs, en það langt frá landi að hætta er ekki á ferðum.

Þetta er 4,500 tonna gámaflutningaskip , sem var að koma úr strandsiglingu á leið til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×