Innlent

Flugvél rann út af flugbraut á Keflavíkurflugvelli

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Slæmt skyggni er á vellinum.
Slæmt skyggni er á vellinum. Mynd/Metúsalem Björnsson
Flugvél Primera Air rann út af flugbraut á Keflavíkurflugvelli við lendingu um fimmleytið. Vélin var að koma frá Alicante á Spáni. Enginn slasaðist og er talið að flugvélin sé í lagi.

Samkvæmt farþega í vélinni var fólki vel brugðið en að allir farþegar séu rólegir núna. Rúta sé á leiðinni til að ferja farþega inn í flugstöðina.

Töluverður viðbúnaður var á vellinum og voru farþegar ferjaðir með rútu í flugstöðina.Mynd/Metúsalem Björnsson
„Samkvæmt mínum upplýsingum er enginn slasaður og vélin í lagi. Hún rann út af flugbrautinni og það er mikil snjókoma á Keflavíkurflugvelli,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við Vísi.

Hann segir að rannsóknarnefnd samgönguslysa sé komin í málið.

Uppfært 18:32:

Farþegar eru nú að yfirgefa vélina.

„Takk fyrir þolinmæðina og gott að enginn meiddist," sagði flugfreyjan og varaði við hálum tröppum. Ferja á farþega í flughöfn og svo verður flugvélin dregin að flugstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×