Innlent

Fluguveiðinördar í hundruða vís hittast

Svavar Hávarðsson skrifar
Við þingvallavatn. Vernd ísaldarurriðans verður eitt meginefna málþings um stangveiði og umhverfisvernd.
Við þingvallavatn. Vernd ísaldarurriðans verður eitt meginefna málþings um stangveiði og umhverfisvernd. Fréttablaðið/Vilhelm
„Ég er búinn að fá það staðfest að sýningin í Reykjavík er langstærsta RISE-hátíð í heimi. Næst kemst Sidney í Ástralíu með 260 manns. Við verðum með allavega 500 manns hjá okkur í ár,“ segir Kristján Benediktsson, framkvæmdastjóri fluguveiðiferðaskrifstofunnar Iceland Angling Travel (IAT), skipuleggjandi alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar um fluguveiði sem haldin verður í Háskólabíó í kvöld.

Kristján, eða Stjáni Ben eins og veiðimenn þekkja hann, hefur staðið fyrir hátíðinni undanfarin ár og ljóst að hún hefur þegar sprengt utan af sér sitt fyrra heimili í Bíó Paradís þar sem 330 manns komu saman í fyrra.

Mikið er lagt í hátíðina til að allir njóti hennar sem best; íslenskur texti er með öllum myndunum en þýðingarvinnuna tók forkólfurinn sjálfur að sér. Myndirnar fimm sem verða sýndar eru fullar 100 mínútur - en þær eru valdar eftir einfaldri formúlu. Þær fimm fluguveiðimyndir sem hafa hlotið mestu viðurkenninguna eftir árið eru sýndar. Ein þeirra er frá Íslandi og nefnist Yow - Icelandic for Yes. Þar er veiðimönnum fylgt eftir á bökkum Haukadalsár, Vesturdalsár, Hofsár og á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal.

En þá er aðeins fátt eitt talið. Einn frægasti fluguhnýtingameistari heims kemur til landsins og sýnir list sína á stóru sýningarsvæði í anddyri kvikmyndahússins sem nýtt verður undir veiðisýningu áður en sýning myndanna hefst. Þar koma saman fjölmargir sem tengjast fluguveiði á einhvern hátt - sölu veiðileyfa eða búnaðar, auk alls þess sem veiðimaðurinn vill hafa í hverjum túr.

Tvinnað saman við veiðisýninguna og RISE kvikmyndahátíðina er málstofa um stangveiði og umhverfisvernd sem kemur fyrst í þessari stórveislu veiðimanna, eða klukkan 17:00. Kvikmyndasýningin sjálf hefst klukkan 20:00.

Í málstofunni mun meðal annarra Sveinn Kári Valdimarsson, líffræðingur hjá Landsvirkjun, kynna aðgerðir Landsvirkjunar varðandi verndun Þingvallaurriðans, og væntanlega reifa hugmyndir fyrirtækisins um fiskveg í Efra-Sog.

Jóhannes Sturlaugsson, hjá Laxfiskum ehf., mun fjalla um Þingvallaurriðann og hvernig má stuðla að uppgangi hans með hóflegri umgengni en hann hefur rannsakað urriðann um langt skeið.

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, mun fjalla um efnahagslegt og samfélagslegt gildi stangveiða, og Valgarður Ragnarsson reifa reynsluna af veiða-og-sleppa í Húseyjarkvísl.

Ráðstefnan er á vegum Íslandsdeildar CTCF, Continental Trout Conservation Fund, og mun kynna samtökin stuttlega. Á eftir verður opnað fyrir umræður og fyrirspurnir. Umræðustjóri er Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og verndari ísaldarurriðans til áratuga, er umræðustjóri.

„Ég er búinn að bíða í áratugi eftir að Landsvirkjun kynni loks hugmyndir sínar um fiskveg milli Þingvallavatns og Efra-Sogs og bíð spenntur eftir að heyra Svein Kára tala um aðgerðir hennar til að endurreisa ísaldarurriðann,“ segir Össur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×