Innlent

Flugu yfir gosið: „Hraunflæðið myndar samfelldar hraunár“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Þessa mynd tók Egill Aðalsteinsson tökumaður í flugi yfir gosstöðvarnar í morgun.
Þessa mynd tók Egill Aðalsteinsson tökumaður í flugi yfir gosstöðvarnar í morgun.
„Það sem var stórkostlegast var hvað það var mikið hraunflæði. Hraunflæðið myndar samfelldar hraunár. Þetta var nánast eins og æðarkerfi,“ segir Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, sem flaug yfir gosið í Holuhrauni í morgun ásamt Agli Aðalsteinssyni tökumanni.

„Það var ennþá mikill kraftur í gosinu. Að mínu mati virtist krafturinn vera meiri nú en þegar við vorum á gosstöðvunum fyrir hádegi í gær. Gosið er ennþá á fullu og ekkert lát á því. Ég hef enga trú á að þetta sé í rénun,“ bætir Kristján Már við.

Hann segir að stíf suðvestan átt hafi þyrlað upp sandmistri þegar þeir Egill flugu þarna yfir. „Það er kannski erfitt fyrir fólk sem fylgist með úr vefmyndavél Mílu á Vaðöldu á sjá gosið akkúrat núna. En skyggnið var ágætt þegar við flugum þarna yfir. Þetta var mikið sjónarspil, þetta var mjög merkileg sjón,“ segir Kristján Már og bætir við:

„Sprungan virtist öll vera opin og mismikill kraftur í henni. Krafturinn virtist mestur í syðri hluta sprungunnar, en það var einnig mikil virkni í nyrsta hlutanum. Það er eins og einn gígurinn í suðurhlutanum sé að verða kraftmestur.“

Kristján segir að þetta hafi verið ansi mögnuð upplifun, að sjá gosið svona ofan frá. „Hvernig gosið flæddi eins og þetta væru hraunár, í eldrauðum elfum, kom okkur mest á óvart.“

Hér má sjá hvernig gosið flæðir um, eins og hrauná.Vísir/Egill Aðalsteinsson
Hér má sjá gosið enn betur.Vísir/Egill Aðalsteinsson

Tengdar fréttir

Það má búast við hverju sem er

Hraungos sem hófst norðan Vatnajökjuls í nótt stendur enn yfir, en það er talið allt að 50 sinnum stærra en gosið sem var þar í fyrradag. Vísindamenn segja ómögulegt að spá fyrir um framhaldið en segja atburðarás síðustu daga minna á upphaf Kröfluelda.

Kristján Már fann hitann frá gosinu

Kristján Már Unnarsson fréttamaður á Stöð 2 hefur verið fyrir norðan síðan eldgosið hófst aðfaranótt föstudags.

Hvað á nýja eldstöðin að heita?

Fjölmargar tillögur um nafn á nýju eldstöðina hafa borist fréttastofu. Flestir leggja til Drekahraun og þá hafa einnig fjölmargir lagt til Bárðarhraun.

Nýjasti hluti Íslands

Fréttamaður Stöðvar 2 fékk lögreglufylgd að gosstöðvunum í gær til að líta hið nýja hraun augum, sem kom upp úr gossprungunum á föstudaginn.

Verulegur sandstormur víða

Samkvæmt Veðurstofu Íslands er búist við stormi víða um land með snörpum vindhviðum við fjöll. Þá er jafnframt búist við mikilli úrkomu á suðausturlandi og er hætt við skriðum á þeim slóðum.

Álíka en kraftmeira en gosið 1984

Eldgosið í Holuhrauni stendur enn yfir, en geta í fyrramálið lagt mat á það hvort þrýstingurinn í bergganginum hafi minnkað eða einfaldlega færst annað. Vísindamenn hafa nú áhyggjur af gasmagni á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×