Erlent

Flugstjóri bauð farþegum upp á pítsu vegna seinkunar vélar

Atli Ísleifsson skrifar
Má ég biðja um eina pepp og svepp?
Má ég biðja um eina pepp og svepp? Mynd/Riley Vasquez
Flugstjóri vélar flugfélagsins Delta bauð farþegum upp á pítsu eftir að lenda þurfti í Knoxville vegna óveðurs á leiðinni frá Fíladelfíu til Atlanta í gær.

Flugstjórinn pantaði fjölda pítsa frá Pizza Hut og var þeim ekið í farangursvögnum út í vélina þar sem farþegar neyddust til að bíða í nokkrar klukkustundir.

Í frétt Daily Mail segir að lenda varð vélinni í Tennessee-ríki vegna slæms veðurs í Georgíu.

Maturinn kom farþegum ánægjulega á óvart og hrósuðu margir flugstjóranum á samfélagsmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×