Erlent

Flugfélög fresta flugferðum til Tel Aviv

Atli Ísleifsson skrifar
Vél Delta á leið til Tel Aviv var snúið við fyrr í dag og lenti í París vegna árásar á hús nærri Ben Gurion flugvelli í Tel Aviv.
Vél Delta á leið til Tel Aviv var snúið við fyrr í dag og lenti í París vegna árásar á hús nærri Ben Gurion flugvelli í Tel Aviv. Vísir/AFP
Bandarísku flugfélögin Delta og U.S. Air hafa frestað flugum til ísraelsku borgarinnar Tel Aviv eftir að eldflaug lenti nærri Ben Guiron-flugvelli fyrr í dag.

Að sögn AP segir að vél Delta frá New York var á flugi yfir austanvert Miðjarðarhafi þegar ákveðið var að snúa henni við og lenda í París. 300 manns voru um borð í vélinni.

Flugfélög og flugfarþegar eru margir sérstaklega uggandi vegna atburða síðustu viku þar sem MH17 vél Malaysia Airlines var skotin niður þegar hún flaug yfir austurhluta Úkraínu á leið sinni frá Amsterdam til Kuala Lumpur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×