Erlent

Flugfarþegar ýttu vélinni í 52 gráðu frosti

Atli Ísleifsson skrifar
52 gráðu frost var í Igarka í Síberíu.
52 gráðu frost var í Igarka í Síberíu.
Flugfarþegar í rússnesku borginni Igarka í Síberíu voru nýlega beðnir um að fara út á flugbraut og ýta flugvélinni til að koma henni á hreyfingu.

Atvikið náðist á myndband en gríðarlega kalt var í veðri þar sem hitastigið var um 52 mínusgráður.

74 farþegar voru um borð í vélinni sem tók að lokum á loft og lenti nokkru síðar í borginni Krasnoyarsk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×