Innlent

Flugdólgurinn sendur á spítala

Mynd sem farþegi tók eftir að maðurinn var reyrður við sætið.
Mynd sem farþegi tók eftir að maðurinn var reyrður við sætið.
Íslenski flugdólgurinn sem var reyrður niður í sætið sitt þegar hann flaug með vél Icelandair til New York í gærkvöldi, var sendur á spítala eftir skýrslutöku. Samkvæmt upplýsingafulltrúa á JFK flugvellinum, Ron Marsico, var tekin skýrsla af dólginum eftir að hann lenti á flugvellinum í nótt. Þá þegar varð ljóst að maðurinn var svo drukkinn að það þótti réttast að senda hann á spítala.

Sjónarvottar í flugvélinni lýstu því meðal annars hvernig maðurinn, sem er íslenskur, drakk heila flösku af Tópas-vodka á aðeins klukkustund eða tveimur. Því næst lét maðurinn dólgslega, meðal annars greip hann í konu sem sat við hliðina á honum og hrópaði að flugvélin væri að fara að hrapa. Þá greip hann annan farþega kverkataki samkvæmt sjónarvotti og hrækti á aðra farþega. Að lokum var hann yfirbugaður af farþegum og áhöfn vélarinnar. Hann var bæði bundinn og límdur niður. En samkvæmt upplýsingafulltrúa Icelandair, er límbandið hluti af búnaði starfsfólksins komi svona atvik upp

Maðurinn hefur ekki verið kærður fyrir athæfið samkvæmt Marsico og óljóst hvort það standi til.




Tengdar fréttir

Farþegum brugðið þegar flugdólgurinn var handtekinn

Fólki í vél Icelandair, sem flaug frá Íslandi til New York í gær, var mjög brugðið eftir að flugdólgur var handtekinn í vélinni. Maðurinn hafði verið með allmikil læti þegar hann var loks yfirbugaður af áhöfn vélarinnar og farþegum.

Flugdólgurinn gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm

Maður sem var tjóðraður niður vegna óláta um borð í flugvél Icelandair á leið til New York í Bandaríkjunum í gær gæti átt yfir höfði sér háa fjársekt og jafnvel fangelsi í Bandaríkjunum. Hann á líka á hættu að vera meinað um að koma þangað aftur, sagði í fréttum Bylgjunnar klukkan 2. Maðurinn er íslenskur.

Flugdólgur yfirbugaður af farþegum hjá Icelandair

Karlmaður var yfirbugaður af farþegum og áhöfn flugvélar Icelandair sem var á leiðinni til New York. Mynd af manninum hefur vakið heimsathygli en þar sést að hann hefur hreinlega verið límdur við sæti sitt.

Sjónarvottur fullyrðir að dólgurinn hafi verið íslenskur

Sjónarvottur fullyrðir að maðurinn sem var yfirbugaður í flugvél Icelandair í gærkvöldi, hafi verið íslenskur. Sá var hér á landi um áramótin ásamt félögum sínum, en vinur hans, sá sem tók myndina sem fer eins og eldur um sinu á netinu - og er meðal annars ein sú vinsælasta á reddit.com núna - segir að hann hafi verið raunverulega hræddur við manninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×