Innlent

Flugdólgur handtekinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Flugfarþegi sem var að koma til Íslands frá Gdansk var nýverið handtekin af lögreglu. Hann var ölvaður í fluginu og hafði áreitt farþega og áhöfn flugvélarinnar. Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum var maðurinn færður á lögreglustöð þar sem hann svaf úr sér og var sleppt að lokinni skýrslutöku.

Auk þess óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu. Sá hafði ekið ölvuðu erlendu pari frá Reykjavík til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og var ekki innistæða á greiðslukorti þeirra fyrir fargjaldinu.

Konan sagði manninn hafa týnt öðru korti sem á væri nægur peningur. Þegar maðurinn afhenti lögreglu veski sitt kom hins vegar í ljós að týnda kortið væri þar og fékk bifreiðarstjórinn greiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×