Innlent

Flugdólgur handtekinn á Keflavíkurvelli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Áhöfn vélarinnar reyndi að tala hann til og róa hann, en án árangurs.
Áhöfn vélarinnar reyndi að tala hann til og róa hann, en án árangurs. Visir/valli
Óskað var aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni við að fjarlægja drukkinn og ógnandi farþega sem var að koma með flugi frá Halifax en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Um var að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem hóf að haga sér dólgslega strax í upphafi flugs.

Var hann ógnandi, með ólæti og barði meðal annars í sjónvarpsskjá sem ætlaður er farþegum. Þá rauf hann innsigli á bakka fyrir björgunarvesti og reif vestið fram.

Áhöfn vélarinnar reyndi að tala hann til og róa hann, en án árangurs.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn við komuna til landsins vegna brots á lögum um loftferðir og að hafa ógnað öryggi loftferða. Tekin var af honum skýrsla og hann síðan vistaður í fangaklefa meðan af honum bráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×