Innlent

Flúðu féló vegna myglu

Þorgeir Helgason skrifar
Senda þurfti óléttan hælisleitanda með sjúkrabíl á Landspítalann vegna myglu.
Senda þurfti óléttan hælisleitanda með sjúkrabíl á Landspítalann vegna myglu.
„Konan mín, sem var gengin sex mánuði á leið, var orðin mjög veik vegna myglunnar. Hún var með útbrot á öllum líkamanum og sonur minn var einnig farinn að fá útbrot,“ segir Tony Cana, albanskur hælisleitandi.

Fjölskyldan bjó í húsnæði á vegum velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Eftir að móðirin hafði verið send með sjúkrabíl á Landspítalann, vegna myglunnar í íbúðinni, ákvað hún að yfirgefa húsnæðið. Fjölskyldan hafði búið í húsnæðinu frá apríl til október en leigir núna íbúð í Reykjavík.

Tony segir að þau hjónin hafi margoft kvartað til velferðarsviðs Reykjanesbæjar vegna ástands íbúðarinnar en ekkert hafi verið gert til að útrýma myglunni. Einu sinni hafi starfsmaður velferðarsviðsins heimsótt þau og skoðað íbúðina. Það hafi hins vegar hvorki haft í för með sér að fjölskyldunni væri boðið nýtt húsnæði né að ráðist væri í endurbætur.

Mikil mygla myndaðist í lofti íbúðarinnar vegna vatnsleka frá þakinu.


„Ég get ekki séð að það hafi komið neinar umkvartanir vegnu myglu eða mygluskemmda í íbúðum okkar. Það væri mjög ólíkt okkur ef það kæmi kvörtun og hún væri hunsuð. Þegar fara hefur þurft í einhverjar lagfæringar eða endurbætur á húsnæði þá hefur það yfirleitt gengið mjög fljótt og hratt fyrir sig,“ segir Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs.

Um það bil tveir mánuðir eru liðnir frá því að fjölskyldan yfirgaf íbúðina. Konan hefur hins vegar ekki náð fyrri heilsu á ný og enn má sjá útbrot á henni.

Frá því að hjónin komu til Íslands hafa þau reynt að fá pláss á leikskóla fyrir fjögurra ára son sinn. „Við höfum átt í stöðugum samskiptum við bæjar- og borgaryfirvöld . Síðustu tvo mánuði hefur okkur verið sagt í hverri viku að hann fái pláss í næstu viku en það hefur aldrei verið staðið við það,“ segir Tony.

Tony varð konu að bana fyrir nokkrum árum með gáleysislegum akstri. Fjölskylda konunnar hefur hótað Tony og syni hans lífláti snúi þeir aftur til Albaníu. 

„Ef við þurfum að fara aftur til Albaníu þá mun ég fara til fjölskyldunnar og segja þeim að þau geti drepið mig en biðja þau um að þyrma lífi sonar míns.“

Útlendingastofnun hefur hafnað því að veita fjölskyldunni hæli hér á landi og þá ákvörðun hefur kærunefnd útlendingamála staðfest.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×