Innlent

Flúði lögreglumenn en hljóp inn í lögregluskóla

Samúel Karl Ólason skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Roger Beasley Jr. var stöðvaður af lögreglu í Mississippi í Bandaríkjunum við hefðbundið eftirlit. Hann stökk þó úr bíl sínum og flúði af vettvangi hlaupandi.

Honum lá svo mikið á að fela sig frá lögreglunni að hann tók ekki eftir fjölda lögreglubíla sem hafði verið lagt fyrir utan húsið sem hann hljóp inn í. Þegar hinn 30 ára gamli Beasly kom inn í lögregluskóla Harrisonsýslu í Mississippi var þar fjöldi lögreglumanna við þjálfun og var hann fljótt handtekinn.

AP fréttaveitan segir Beasley hafa verið kærðan fyrir vörslu krakks í söluskömmtum, veita mótþróa við handtöku og glæfralegan akstur. Hann er nú laus gegn tryggingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×