Sport

Flúði af vettvangi eftir árekstur en snéri til baka og sótti peninga í bílinn

Jon Jones.
Jon Jones. vísir/getty
Besti bardagakappinn í UFC, Jon Jones, var handtekinn í gær og er í vondum málum.

Hann lenti í árekstri er hann keyrði yfir á rauðu ljósi og inn á hliðina á bíl sem var ekið af óléttri konu. Hún handleggsbrotnaði.

Jones gerði sér lítið fyrir og hljóp úr bílnum eftir áreksturinn. Hann flúði af vettvangi. Hann kom til baka skömmu síðar og sást þá til hans taka peninga úr bílnum og jafnvel fíkniefni.

Jones á að keppa í UFC þann 23. maí og verður að teljast ólíklegt að hann nái þvi miðað við þau vandræði sem hann er búinn að koma sér í.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×