Bílar

Flottur nýr Kia Rio sýndur í París

Finnur Thorlacius skrifar
Aldrei hefur Kia Rio verið eins flottur og þessi nýja kynslóð bílsins sem sýndur verður almenningi á bílasýningunni í París sem hefst í næsta mánuði. Það fer vel á því að fjórða kynslóð Rio sé kynnt á sama ári og Ólympíuleikarnir voru haldnir í Rio í Brasilíu, en af hverju skildu Kia menn ekki hafa kynnt hann einmitt þar?

Kia Rio er mest selda bílgerð Kia um allan heim og seldust 473.000 Rio bílar á síðasta ári. Þessi fjórða kynslóð Rio kemur á markað alveg í lok ársins og Kia ætlar svo að kynna kraftmikla GT-útgáfu Rio árið 2018.

Með nýju kynslóð bílsins hefur framendinn lengst og húddið stækkað og C-bitinn að aftan er uppréttari. Bíllinn fær LED aðal- og afturljós og bilið milli öxla bílsins hefur lengst og aksturseiginleikar hans batnað fyrir vikið. Helstu samkeppnisbílar Rio í Evrópu eru Volkswagen Polo, Ford Fiesta, Renault Clio og Peugeot 208.

Núverandi útlit Rio.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×