Íslenski boltinn

Flóttinn úr Safamýri: „Það er enginn skjálfti í okkur“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arnþór Ari Atlason, Hafsteinn Briem, Jóhannes Karl Guðjónsson og Guðmundur Magnússon hafa allir yfirgefið Fram.
Arnþór Ari Atlason, Hafsteinn Briem, Jóhannes Karl Guðjónsson og Guðmundur Magnússon hafa allir yfirgefið Fram. vísir/samsett
Fjórði leikmaðurinn sem spilaði með Fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í sumar yfirgaf félagið í dag þegar Hafsteinn Briem rifti samningi sínum við Safamýrarfélagið.

Áður höfðu Arnþór Ari Atlason, GuðmundurMagnússon og Jóhannes Karl Guðjónsson rift samningum sínum. Að sögn SverrisEinarssonar, formanns knattspyrnudeildar Fram, var um samkomulag að ræða í tilviki Jóhannesar en hinir þrír nýttu sér uppsagnarákvæði í samningum sínum og riftu einhliða.

„Þetta eru allt strákar sem ég hefði meira og minna viljað hafa áfram. Það er bara svoleiðis. Ég virði samt ákvarðarnir hvers og eins - þessir drengir verða að taka ákvarðarnir sjálfir. Maður ræður ekkert hvað þeir gera þó ég hefði viljað hafa þetta öðruvísi. Ég gerði þetta öðruvísi þegar ég var sjálfur leikmaður,“ segir Sverrir við Vísi.

Framarar fóru í mikla uppbyggingu síðasta vetur og sóttu haug af ungum leikmönnum sem áttu að fá tækifæri að spila í deild þeirra bestu. Fall var niðurstaðan og nú virðast leikmennirnir ansi fljótir að fara.

„Það var alveg rætt um að falla væri möguleiki og þess vegna var þetta inn í mörgum samningunum. Ég er ekkert að álása strákunum. Þeir gera bara það sem er best fyrir þá sjálfa. Jói Kalli er náttúrlega kominn á aldur og hinir strákarnir vilja líklega spila áfram í efstu deild. Það er samt ekkert loku fyrir það skotið að samið verði við þá aftur,“ segir Sverrir.

Sverrir Einarsson fyrir miðju með Guðjónsson-bræðrum á góðri stundu.vísir/valli
Framarar viku ekki frá stefnu sinni um mitt sumar þegar félagaskiptaglugginn opnaði þó liðið væri í miklum vandræðum. Strákarnir fengu að spila og segir Sverrir að menn þurfi að hugsa hvar bestu möguleikarnir eru.

„Ég sé alveg fyrir mér að strákar sem komast ekki að annars staðar hafi samband. Við ætlum okkur að vera trúir okkar stefnu og menn mega ekkert fara úr öskunni í eldinn. Menn þurfa að vita hvar bestu möguleikarnir eru,“ segir hann.

„Þegar félagaskiptaglugginn opnaði fórum við ekki á taugum heldum héldum okkar striki og sögðu strákunum að þeir fengju að spila og það gerðu þeir,“ segir Sverrir sem hefur ekki áhyggjur af stöðu mála.

„Það er enginn skjálfti í okkur. Fram hefur fallið áður og það hafa orðið breytingar á leikmannamálum. Það verða ellefu leikmenn í Fram-liðinu þegar 1. deildin hefst næsta sumar.“

„Við verðum bara slakir þar til við erum búnir að klára öll okkar mál og þjálfaramál eru komin á hreint. Við höfum verið í viðræðum við Bjarna, en hann er að skoða sín mál og við okkar mál.“

Framarar hafa mikinn áhuga á að nýta þetta tækifæri og færa sig alfarið upp í Úlfarsárdal og spila á gervigrasvelli sínum þar í 1. deildinni að ári.

„Við höfum fullan hug á því, en það eru einhverjar lágmarkskröfur sem við þurfum að mæta. Við erum alltaf að spila risastórum velli sem virkar alltaf hálftómur og hvetur mótherja okkar að því virðist meira en okkar stráka,“ segir Sverrir, en innan félagsins eru menn nú þegar farnir að ræða þetta alvarlega.

„Þarna er fólkið okkar og hverfið okkar. Framtíðin er í Úlfarsárdalnum. Við erum gestir á okkar eigin velli núna þannig við viljum skoða þetta mjög vel í vetur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×