Handbolti

Flóttinn frá Fram heldur áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristófer er kominn aftur í Mosfellsbæinn.
Kristófer er kominn aftur í Mosfellsbæinn. vísir/stefán
Flóttinn frá karlaliði Fram í handbolta heldur áfram en nú hefur markvörðurinn Kristófer Fannar Guðmundsson samið við Aftureldingu. Þetta kemur fram á Mosfellingur.is.

Kristófer, sem er 25 ára, er uppalinn í Mosfellsbænum en hefur undanfarin fjögur ár leikið með ÍR og Fram.

Kristófer mun verja mark Aftureldingar á næsta tímabili ásamt Davíð Svanssyni en reynsluboltinn Pálmar Pétursson er búinn að leggja skóna á hilluna.

Mikið hefur kvarnast úr liði Fram eftir að tímabilinu lauk en flestir lykilmanna þess eru horfnir á braut. Þá urðu þjálfaraskipti í Safamýrinni þegar Reynir Þór Reynisson tók við af Guðlaugi Arnarssyni sem hætti eftir þriggja ára starf.

Afturelding endaði í 3. sæti Olís-deildarinnar í vetur og komst alla leið í lokaúrslit þar sem liðið tapaði 3-2 fyrir Haukum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×