Innlent

Flóttamenn streyma inn í Austurríki

Sveinn Arnarsson skrifar
Þúsundir flóttamanna fóru frá Ungverjalandi í morgun og stefna á Vínarborg í Austurríki eftir að þýsk og austurrísk stjórnvöld samþykktu að taka á móti þeim. Austurríska lögreglan býst við að taka á móti um 10 þúsund flóttamönnum í dag frá Ungverjalandi og veita þeim fæði og skjól.

Um klukkan þrjú í nótt að staðartíma komu rétt um eitt hundrað fólksflutningabílar til landamæraborgarinnar Nickelsdorf, Rúturnar voru sendar af austurrískum stjórnvöldum. Í Nickelsdorf beið fjöldi sýrlenskra flóttamanna eftir að komast inn í Austurríki. Hófust því flutningar á fólkinu í rauðabítið í morgun bæði með fólksflutningabílum sem og lest sem fer á þrjátíu mínútna fresti frá Nickelsdorf til Vínarborgar.

Enn fleiri flóttamenn bíða á lestarstöðinni í Keleti í Ungverjalandi eftir því að komast leiðar sinnar lengra inn í Evrópu.

Hundruð flóttamanna lögðu af stað fótgangandi gegnum Ungverjaland í gær eftir að hafa beðið dögum saman á lestarstöðinni í Búdapest. Sameinuðu þjóðirnar segja að runnin sé upp örlagastund fyrir Evrópu.

Fólkið ætlaði gangandi til Austurríkis, um 240 kílómetra leið. Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa reynt að hindra för þúsunda til Vestur-Evrópu og samþykktu í gær hert lög sem veitir meðal annars lögreglu auknar heimildir til að beita frekara valdi gegn straumi flóttafólks. Táragasi var beitt í flóttamannabúðum í bænum Röszke í gær þar sem verið er að reisa girðingu á landamærum Ungverjalands við Serbíu.

Ungversk stjórnvöld hafa því í nótt ákveðið að opna landamæri sín til að hleypa flóttafólkinu í gegn á leið sinni ti Austurríkis og Þýskalands.

Antonio Guterres, yfirmaður flóttamannadeildar Sameinuðu Þjóðanna, sagði í gær vanta heildarstefnu evrópuríkja til að taka á þeim vanda sem steðjaði að þeim. Sameinuð áætlun Evrópuríkja væri ekki til staðar og brýndi fyrir þeim að setja upp áætlun til að taka við um 200.000 flóttamönnum frá stríðshrjáðu Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×