Sport

Flott byrjun hjá Anítu og Thelmu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Thelma Björg setti tvö Íslandsmet á haustmóti Ármanns.
Thelma Björg setti tvö Íslandsmet á haustmóti Ármanns. Mynd/Sverrir Gíslason
Aníta Ósk Hrafnsdóttir, Fjörður/Breiðablik, og Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, slógu báðar Íslandsmet á haustmóti Ármanns sem fór fram um helgina.

Thelma setti tvö ný Íslandsmet á mótinu, það fyrra í 800m skriðsundi er hún synti á tímanum 12:32,57mín og það seinna í 200m baksundi er hún synti á 3:40,41mín. Thelma keppir í flokki S6, flokki hreyfihamlaðra.

Aníta stórbætti Íslandsmetið sitt í 800m skriðsundi er hún synti á 10:20,48 mín. Aníta keppir í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×