Bílar

Flöt bílasala í Bretlandi í júlí

Finnur Thorlacius skrifar
Ekki eru allir bílar í Bretlandi svona.
Ekki eru allir bílar í Bretlandi svona.
Eftir mikla aukningu í sölu nýrra bíla í Bretlandi á síðustu árum hefur nú hægt á og í júlí nýliðnum var 0,1% vöxtur í sölunni miðað við fyrra ár. Með því má segja að fyrstu áhrifa sé farið að gæta í kjölfar fyrirhugaðs brotthvarfs Bretlands úr Evrópusambandinu.

Í júlí seldust 178.523 bílar í Bretlandi og varð 5% aukning í sölu bíla til fyrirtækja en 6% minnkun í sölu til einstaklinga og samkvæmt því áhrifa Brexit gæta hraðar hjá einstaklingum en fyrirtækjum. Þar sem bílar eru yfirleitt pantaðir með nokkurra mánaða fyrirvara hjá fyrirtækjum en sala til einstaklinga gerist með minni fyrirvara má segja að þessar tölur komi ekki á óvart. Sala bíla minnkaði örlítið í Bretlandi í júní, sem var aðeins annar mánuðurinn sem sala minnkaði frá árinu 2012. 

Hagstæð bílalán hafa örvað sölu

Hjá Volkswagen minnkaði salan í Bretlandi um 9,5% í júlí og markaði það níunda mánuðinn sem salan minnkar af síðustu 10 mánuðum. Því gætir áhrifa dísilvélasvindsl Volkswagen frá því í september mikið í Bretlandi. Bretar virðast afar ginkeyptir fyrir hagstæðum bílalánum því fjórir bílar af hverjum fimm eru keyptir með slíkum lánum.

Bílasalar í Bretlandi óttast að bílasala muni falla mjög mikið á næstunni þar sem ódýr slík lán hafi mettað markaðinn. Á árinu hafa alls selst 1,6 milljón bílar í Bretlandi og vöxturinn numið 2,8% frá árinu í fyrra. Minni sala á seinni hluta ársins gæti þurrkað þann vöxt út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×