Innlent

Flokkarnir fimm mættir til fundar

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Katrín bauð flokkunum að senda einn til þrjá fulltrúa og því sitja nú fjórtán manns á fundi.
Katrín bauð flokkunum að senda einn til þrjá fulltrúa og því sitja nú fjórtán manns á fundi. Vísir/LVP
Fulltrúar Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata funda nú í húsakynnum Alþingis um mögulegar stjórnarmyndunarviðræður. Fundurinn hófst klukkan 13.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, boðað fulltrúa flokkanna á fund sinn í dag. Bauð hún formönnum flokkanna að taka með sér fulltrúa og því sitja nú fimmtán manns á fundi.

Þetta er fyrsti sameiginlegi fundur flokkanna um myndun stjórnar frá því Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitti Katrínu umboð til stjórnarmyndunar síðastliðinn miðvikudag. En Katrín fundaði með leiðtogum flokkanna hverjum fyrir sig á fimmtudag og var í símasambandi við þá í gær og fundaði einnig með þingflokki sínum.

Ásamt Katrínu eru Björn Valur Gíslason, varaformaður VG og Svandís Svavarsdóttir fulltrúar Vinstri grænna. Fyrir hönd Bjartrar Framtíðar sitja fundinn Óttarr Proppé, Nichole Leigh Mosty og Theodóra S. Þorsteinsdóttir. Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar situr fundinn ásamt fyrirrennara sínum Oddnýju G. Harðardóttur og Guðjóni Brjánssyni. Fyrir hönd Viðreisnar eru þau Benedikt Jóhannesson formaður flokksins, Jóna Sólveig Einarsdóttir varaformaður og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þá sitja Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarthy og Einar Brynjólfsson fyrir hönd Pírata.

Þeir sem fréttastofa náði tali af fyrir fundinn voru hóflega bjartsýnir. Katrín mun gera forseta Íslands grein fyrir stöðunni í viðræðunum á mánudag eða þriðjudag. En þegar hann veitti henni umboðið sagði hann að Katrín yrði að hafa hraðar hendur þótt ekki mætti ana að neinu við myndun ríkisstjórnar.


Tengdar fréttir

Píratar og Viðreisn lýsa yfir samstarfsvilja

Formenn Pírata og Viðreisnar blása á sögusagnir um lítinn samstarfsvilja sín í milli. Flokkarnir hafa þótt líklegastir til að vera ljón í vegi við myndun fimm flokka ríkisstjórnar undir stjórn Vinstri grænna. Mál skýrast betur um helg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×