Innlent

Flokkarnir á öndverðum meiði um skattamál

Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Þorbjörn Þórðarson skrifa
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að ekki hafi verið málefnalegur grundvöllur fyrir áframhaldandi viðræðum við Sjálfstæðisflokk, enda sé sýn flokkanna tveggja á ýmis mál afar ólík. Hún segir flokkana meðal annars hafa verið á öndverðum meiði um hátekjuskatt á laun hærri en ein og hálf milljón.

„Við höfum talað fyrir ákveðnum leiðum í þessum efnum og talað mjög sterkt fyrir því hvernig megi styrkja innviðina í samfélaginu og hvaða leiðir þurfi að fara til þess [...] Við höfum að sjálfsögðu haldið til haga okkar stefnu að nýta skattkerfið til tekjuöflunar og það er auðvitað mikilvægur þáttur í okkar stefnu,“ segir Katrín í samtali við fréttastofu. Hún tekur þó fram að ekki hafi steytt á neinu ákveðnu máli.

„Við vorum auðvitað bara að ræða saman óformlega þannig að það er ekki eins og það hafi steytt á einhverju tilteknu máli. En það liggur auðvitað fyrir að sýn og nálgun þessara flokka, til dæmis þegar kemur að efnahagsmálum, ríkisútgjöldum, og tekjuöflun ríkisins, er mjög ólík, svo dæmi séu tekin. En ég vil ekki segja að það hafi steytt á neinu atriði heldur má segja að það sé ansi langt á milli flokka.“  

Grundvöllur fyrir þjóðstjórn

Aðspurð hvert framhaldið sé segir hún að mögulega sé kominn grundvöllur fyrir þjóðstjórn. „Ég hef sagt að allir flokkar þurfi að fara að velta því fyrir sér hversu langt þeir eru tilbúnir að ganga í því að slá af sínum kröfum. Hvort það sé jafnvel orðinn grundvöllur fyrir því að fara jafnvel í einhvers konar þjóðstjórn ef ekki tekst að mynda hefðbundna meirihlutastjórn með hugmyndafræðilegar áherslur.“

Og þá kjósa aftur?

„Ja, einhvers konar þjóðstjórn og kjósa síðan fyrr.“

Katrín segir nú ákveðna óvissu ríkja en tekur fram að samtöl flokkanna tveggja verði dýrmætt veganesti inn í samstarfið á Alþingi.

Í spilaranum hér að ofan má sjá viðtal Þorbjörns Þórðarsonar, fréttamanns Stöðvar 2, sem hann tók við Katrínu á Alþingi í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×